Kynning Íslands á Bókasýningunni í Frankfurt 2011 vakti mikla athygli fjölmiðla í Þýskalandi og víðar í Evrópu. Hér gefur að líta brot af þeirri umfjöllun sem birtist á meðan henni stóð.
Lesa meiraSíðasti blaðamannafundur Sögueyjunnar á Bókasýningunni fór fram 15. október.
„Sjaldan hefur nokkurt land náð jafnmiklum árangri á Bókasýningunni í Frankfurt,“ segir þýska dagblaðið Süddeutsche Zeitung um þátttöku Íslands á Bókasýningunni.
Lesa meiraÁ sýningunni TEXT, sem opnar 15. október í Kuckei + Kuckei í Berlín, hafa verið valdir saman 19 íslenskir og erlendir listamenn sem vinna með texta í myndlist sinni.
Lesa meira12. október fór fram blaðamannafundur Sögueyjunnar og AmazonCrossing á Bókasýningunni í Frankfurt.
Á Bókasýningunni í dag átti sér stað hjartnæm stund þar sem Horst Korske, loftskeytamaður þýska kafbátsins sem sökkti Goðafossi þann 10. nóvember árið 1944, og Sigurður Guðmundsson, háseti Goðafoss, mættust á sáttafundi.
Lesa meiraFormleg opnunarathöfn Bókasýningarinnar í Frankfurt fór fram 11. október, fyrir fullu húsi, þar sem Arnaldur Indriðason og Guðrún Eva Mínervudóttir töluðu fyrir hönd íslenskra rithöfunda. Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, flutti ræðu fyrir hönd heiðursgestsins.
Lesa meiraSýningin „Sögueyjan Ísland – Portrett af íslenskum samtímahöfundum“ opnar 10. október í borgarbókasafni Frankfurt. Sýningin samanstendur af ljósmyndum Kristins Ingvarssonar og viðtölum Péturs Blöndal við 22 íslenska samtímahöfunda.
Lesa meiraValgeir Sigurðsson, amiina, Íslenski dansflokkurinn, Mótettukórinn og píanókvartett með Judith Ingólfsson og Vladimir Stoupel í fararbroddi eru meðal flytjenda sem koma fram á viðburðum í Frankfurt á meðan á Bókasýningunni stendur.
Lesa meiraUm helgina fara fram tveir stórir viðburðir í Þýskalandi tengdir íslenskum bókmenntum. Annars vegar Löng nótt íslenskra bókmennta í Köln og hins vegar Dagur íslenskra bókmennta í Berlín.
Lesa meiraAldrei fyrr hafa íslenskar bókmenntir fengið aðra eins athygli í Evrópu og nú, í aðdraganda Bókasýningarinnar í Frankfurt 2011.
Lesa meiraTímamótasýning Errós í SCHIRN opnar 6. október. Tvær stórar myndaraðir, „Scapes“ og „Monsters“, verða sýndar.
Lesa meira