Auglýst eftir umsóknum um þýðingastyrki á íslensku
Umsóknarfrestur er til 15. nóvember næstkomandi.
Umsóknarfrestur er til 15. nóvember næstkomandi.
Miðstöð íslenskra bókmennta auglýsir eftir umsóknum um styrki til þýðinga á íslensku. Þeim er ætlað að styrkja þýðingar sem gera alþjóðlega þekkingu og menningarverðmæti aðgengileg fyrir íslenskt málsamfélag. Leitast er við að styrkja mikilvæg verk úr samtímanum (jafnt bækur almenns efnis og skáldverk) og heimsbókmenntir í víðum skilningi. Umsóknarfrestur er til og með 15. nóvember 2013. Eyðublöð og nánari upplýsingar er að finna hér.
Fylgist með Miðstöð íslenskra bókmennta á Facebook og Twitter. Sjá hnappa neðst á síðunni til hægri.