Miðstöð íslenskra bókmennta í London 14.-16. apríl  

Samnorrænn sýningarbás á bókamessuni líkt og tvö undanfarin ár. Básinn er númer 6F70.

8. apríl, 2015

Á bókamessunni í London verða Miðstöð íslenskra bókmennta og Félag íslenskra bókaútgefenda á sameiginlegum norrænum bás ásamt bókmenntakynningarstofunum Norla í Noregi, Fili í Finnlandi, Farlit í Færeyjum, Statens Kulturråd í Svíþjóð og Kulturstyrelsen í Danmörku. Básinn er númer 6F70.

Nýr bókalisti kynntur í London. Í kynningarstarfi Miðstöðvar íslenskra bókmennta (Míb) í London verður lögð áhersla á lista yfir bækur frá liðnu ári, en Miðstöðin hefur gert sambærilega lista undanfarin tvö ár, líkt og tíðkast hjá systurstofnunum Míb erlendis. Listana má alla finna hér á heimasíðunniÁ listanum í ár má finna nýjar bækur, verðlaunabækur síðasta árs, bækur eftir unga, upprennandi höfunda og bækur sem nýlega hafa verið seldar erlendum útgefendum.

Miðstöð íslenskra bókmennta á samnorrænum bás í London. Líkt og tvö undanfarin ár standa bókmenntakynningarstofur Norðurlandanna að sameiginlegum bás á bókamessunni í London í ár. Miðstöð íslenskra bókmennta, í samstarfi við Félag íslenskra bókaútgefenda, verður þar auk norrænu bókmenntakynningarstofanna Norla í Noregi, Fili í Finnlandi, Farlit í Færeyjum, Swedish Arts Council/Statens Kulturrad í Svíþjóð og Kulturstyrelsen/The Danish Arts Council í Danmörku.

Fjöldi spennandi viðburða í Olympia. Sýnendur í Olympia, í vestur London, sem er sýningarsvæði bókasýningarinnar í ár, eru um 1500 talsins frá öllum heimshornum og um 25.000 fagaðilar á bókasviði sækja sýninguna á ári hverju. Einnig er fjöldi ráðstefna, fyrirlestra og pallborðsumræða haldinn í tengslum við sýninguna. Sjá nánar á http://www.londonbookfair.co.uk

Básinn er númer 6F70. Norræni básinn á bókasýningunni í London er númer 6F70. Við hlökkum til að taka þar á móti unnendum íslenskra bókmennta og öllum þeim sem vilja kynnast þeim betur.

 


Allar fréttir

Hrím og Skrímslavinafélagið tilnefndar til barna og unglingabókaverðlauna Norðurlandaráðs 2024 - 17. apríl, 2024 Fréttir

Unglingasagan Hrím eftir Hildi Knútsdóttur og barnabókin Skrímslavinafélagið eftir Tómas Zoëga og myndlýst af Sólrúnu Ylfu Ingimarsdóttur eru tilnefndar til Barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2024 fyrir Íslands hönd.

Nánar

Íslenskar bækur væntanlegar á 21 erlendu tungumáli - 15. apríl, 2024 Fréttir

Í fyrri úthlutun ársins voru veittir 55 styrkir til þýðinga íslenskra bóka á 21 tungumál, þar á meðal ensku, frönsku, pólsku, þýsku, úkraínsku, ítölsku, spænsku, sænsku, finnsku og færeysku.

Nánar

Tilnefningar til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2024 - 22. febrúar, 2024 Fréttir

Skáldævisagan Jarðsetning eftir Önnu Maríu Bogadóttur og skáldsagan Tól eftir Kristínu Eiríksdóttur eru tilnefndar til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2024 fyrir Íslands hönd.

Nánar

Allar fréttir