ALLIR LESA fékk Lúðurinn, Íslensku auglýsingaverðlaunin, í flokki almannaheillaauglýsinga. 

Allir lesa hlaut Íslensku auglýsingaverðlaunin, Lúðurinn, í flokki almannaheillaauglýsinga, en þau voru veitt á Ímark hátíðinni í Háskólabíói föstudaginn 13. mars. Auglýsingarnar gerði Jónsson og Le´macks.  

13. mars, 2015

Það er aðstandendum verkefnisins mikill heiður að fá þessi verðlaun, í þeim felst hvatning til að þróa Allir lesa áfram og  halda umræðunni um lestur í samfélaginu lifandi.

Það er aðstandendum verkefnisins mikill heiður að fá þessi verðlaun, í þeim felst hvatning til að þróa Allir lesa áfram og  halda umræðunni um lestur í samfélaginu lifandi. Auglýsingastofan Jónsson og Le‘macks á heiðurinn af verðlaunaútlitinu, en í auglýsingunum er lögð áhersla á gleðina og sköpunarkraftinn sem felst í lestri. Aðstandendur Allir lesa eru Miðstöð íslenskra bókmennta og Reykjavík Bókmenntaborg UNESCO. 

Vefurinn allirlesa.is er opinn allt árið. Þar geta lesendur skráð þær bækur sem  verið er að lesa, gefið þeim umsögn og skráð tímann sem þeir verja í lestur. Allirlesa.is er því handhægur og þægilegur vefur til að halda utan um eigin lestur. Vefurinn er í stöðugri þróun og hafa lesendur hjálpað okkur við að móta betri vef og munu vonandi gera það áfram. Búið er að bæta  „Mínar síður“ og er nú til að mynda hægt að skrá niður þær bækur sem mann langar að lesa. Notendur geta því séð á einfaldan hátt hvað þeir hafa lesið, hvað þeir eru að lesa og hvað þá langar að lesa. Umsagnir og stjörnugjöf Umsagnir um bækur og stjörnugjöf sjást nú á vinsældarlistanum á forsíðu Allir lesa. Einnig geta lesendur deilt sínum umsögnum á Facebook og þannig skorað á fleiri að lesa áhugaverðar bækur. Til að auðvelda lesendum að skrá nýjar bækur er nú beintenging við einn stærsta gagnagrunn bóka í heiminum þar sem flestar nýjar íslenskar bækur er að finna. Með einföldum hætti er hægt að sækja upplýsingar um bækur með því að skrá ISBN númer bókarinnar. Vefurinn sækir þá upplýsingar um titil og höfund sjálfkrafa. 

Allir lesa er vettvangur fyrir landsmenn til að skrá lestur á einfaldan hátt og halda þannig eigin lestrardagbók á vefnum. Vefurinn var opnaður með viðhöfn  10. október 2014 og hófst þá formlega fyrsti landsleikurinn í lestri. Þátttaka  í leiknum fór fram úr björtustu vonum og eftir æsispennandi lestrarvikur stóðu þrjú lið uppi sem sigurvegarar. Öll hlutu þau glaðning eftir mikinn lestur.   

Að verkefninu Allir lesa standa Miðstöð íslenskra bókmennta og Reykjavík Bókmenntaborg UNESCO ásamt traustum hópi styrktaraðila, s.s. Félagi íslenskra bókaútgefenda, Mjólkursamsölunni, Símanum, Samtökum atvinnulífsins og Mennta- og menningarmálaráðuneytinu. Þessi hópur veit hve lestur og læsi er mikilvægt fyrir einstaklinga og samfélag, hvort sem um ræðir bóklæsi, fjármálalæsi, náttúrulæsi eða annað læsi. Vefurinn er unninn í samstarfi við Advania. 

Allir lesa – landsleikur í lestri fer næst fram í ársbyrjun 2016, en þangað til hvetjum við landsmenn til að halda utan um lestur sinn á vefnum allirlesa.is. Verið velkomin í stærsta lestrarsamfélag á landinu á allirlesa.is.  


Allar fréttir

Hrím og Skrímslavinafélagið tilnefndar til barna og unglingabókaverðlauna Norðurlandaráðs 2024 - 17. apríl, 2024 Fréttir

Unglingasagan Hrím eftir Hildi Knútsdóttur og barnabókin Skrímslavinafélagið eftir Tómas Zoëga og myndlýst af Sólrúnu Ylfu Ingimarsdóttur eru tilnefndar til Barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2024 fyrir Íslands hönd.

Nánar

Íslenskar bækur væntanlegar á 21 erlendu tungumáli - 15. apríl, 2024 Fréttir

Í fyrri úthlutun ársins voru veittir 55 styrkir til þýðinga íslenskra bóka á 21 tungumál, þar á meðal ensku, frönsku, pólsku, þýsku, úkraínsku, ítölsku, spænsku, sænsku, finnsku og færeysku.

Nánar

Tilnefningar til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2024 - 22. febrúar, 2024 Fréttir

Skáldævisagan Jarðsetning eftir Önnu Maríu Bogadóttur og skáldsagan Tól eftir Kristínu Eiríksdóttur eru tilnefndar til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2024 fyrir Íslands hönd.

Nánar

Allar fréttir