Bókasýningin í Frankfurt

Bókasýningin í Frankfurt

Mynd af messusvæðinuBókasýningin í Frankfurt er ein mikilvægasta og jafnframt stærsta bókasýning heims. Gott alþjóðlegt orðspor og víðtæk athygli á heimsvísu fylgja þessari einstöku sýningu. Hún er vettvangur mikilvægustu bókaútgefenda heims, sniðpunktur alþjóðlegra tengslaneta, helsta markaðstorg höfundarrétta, upphafstaður þýðingarverkefna og þarmeð helsti samkomustaður alþjóðlegra bókmenntamiðlara.

Alls taka rúmlega 7.000 sýningaraðilar frá 100 löndum þátt í sýningunni og kynna samtals um 400.000 bókatitla. Tæplega 300.000 gestir sækja sýninguna.

Frá því 1976 hefur sýningarstjórnin boðið bóka- og menningarþjóðum að vera heiðursgestur sýningarinnar og fá þær þjóðir einstakt tækifæri til að kynna bókaútgáfu sína í víðtæku menningarlegu samhengi.

Allt frá hátíðlegri opnun bókasýningarinnar með boðsgestum ásamt eigin sýningarskála og umfangsmikilli fyrirlestra- og sýningardagskrár er heiðursgesturinn í algerum miðdepli á sýningardögunum í Frankfurt.

Jafnhliða sýningunni bjóða söfn, gallerí, kvikmyndahús, tónleikasalir og bókmenntafélög á þýskumælandi slóðum til dagskrár með listafólki frá heiðurslandinu.

Alþjóðlegir fjölmiðlar notfæra sér tilefnið og fjalla sérstaklega um bókmenntir og menningu heiðursgestsins. Höfundar og verk þeirra eru kynnt rækilega í bókmenntatímaritum og frétta- og dægurmálaþáttum. Jafnframt gefa lífstíls- og ferðatímarit út sérblöð tileinkuð heiðursgestinum. Slík víðtæk fjölmiðlaumfjöllun leiðir til gríðarlegrar athygli sem beinist að menningu viðkomandi lands í aðdraganda sýningarinnar og löngu eftir að henni lýkur.


 buchmesse


Útlit síðu: