Íslensk list
Íslensk list – þjóðfélagsspegill, vettvangur umræðu og tilrauna
Nú eru umbrotatímar á Íslandi líkt og annars staðar. Breytingar í samfélaginu kalla ávallt á breytta list. Listin er þjóðfélagsspegill – hún gagnrýnir, skeggræðir og kryfur til mergjar. Hún varpar fram spurningum – til dæmis um stjórnmál, tækni, þjóðhætti, sögu og náttúru – á annan hátt en fréttaskýringar dagblaða og tímarit. „Sýndu mér listaverk þjóðar þinnar og þá skal ég segja þér í hvernig landi þú býrð,“ gætum við sagt.
Í alþjóðasamhengi einkennist íslensk list öllu fremur af fjölbreyttum viðfangsefnum og ríkulegu samstarfi. Hér ríkir sterk tilheiging til þverfaglegrar nálgunar: tónlistarmaður tekur líka ljósmyndir, rithöfundur málar málverk, kvikmyndagerðarmaður semur tónlist, vídeólistamaður skrifar ljóð. Slík list er stöðugt að skilgreina sjálfa sig upp á nýtt.
