Höfundar

Eðvarð Ingólfsson

Eðvarð Ingólfsson

Um höfund


Eðvarð Ingólfsson, fæddur árið 1960 í Reykjavík,  er barna- og unglingabókahöfundur. Hann útskrifaðist frá Menntaskólanum á Egilsstöðum árið 1981 og lauk guðfræðinámi við Háskóla Íslands árið 1995.

Eðvarð hefur stundað ritstörf jafnhliða námi og öðrum störfum frá árinu 1980. Árin 1981-86 var hann dagskrárgerðamaður hjá Ríkisútvarpinu, á Rás 1 og Rás 2. Hann var blaðamaður hjá barnablaðinu Æskunni 1982-84 og ritdómari á Morgunblaðinu 1990-94. Árin 1991-99 starfaði hann sem ritstjóri Regins, tímarits templara, og var skipaður sóknarprestur í Skinnastaðarprestakalli í Norður-Þingeyjarsýslu árið 1996 og í Garðaprestakalli á Akranesi árið 1997.

Árið 1988 hlaut hann verðlaun Skólamálaráðs Reykjavíkur fyrir bestu frumsömdu barna- og unglingabókina.

Skáldverk

Barna- og unglingabækur:


Haltu mér - slepptu mér, 1990: Æskan 

Meiriháttar stefnumót, 1988: Æskan 

Pottþéttur vinur, 1987: Æskan

Ástarbréf til Ara, 1986: Æskan

Sextán ára í sambúð, 1985: Æskan

Fimmtán ára á föstu, 1984: Æskan

Birgir og Ásdís, 1982, 1994: Æskan

Hnefaréttur, 1981: Æskan

Gegnum bernskumúrinn, 1980, 1991: Æskan


Rit almenns efnis


Ævisögur og endurminningar: 


Róbert, ævisaga listamanns. Ævisaga Róberts Arnfinnssonar leikara, 1993: Æskan

Lífssaga Ragga Bjarna, söngvara og spaugara, 1992: Æskan

 Árni í Hólminum, engum líkur! Ævisaga Árna Helgasonar, 1989: Æskan 

Baráttusaga athafnamanns. Ævisaga Skúla Pálssonar á Laxalóni, 1988: Æskan

Reynir Pétur og Íslandsgangan, 1985: Skálholt

Við klettótta strönd, Mannlífsþættir undan Jökli, 1983: Æskan





Útlit síðu: