Höfundar
Eiríkur Bergmann Einarsson
Um höfund
Eiríkur Bergmann Einarsson, fæddur 1969, er dósent í stjórnmálafræði og forstöðumaður Evrópufræðaseturs Háskólans á Bifröst.
Meðal annarra akademískra starfa má nefna að Eiríkur hefur verið aðjúnkt í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands, gestakennari við Háskólann í Lundi í Svíþjóð og Háskólann í Rietavas í Litháen, og gestafræðimaður við Kaupmannahafnarháskóla og rannsóknarstofnunina CEPS í Evrópufræðum í Brussel. Eiríkur hefur starfað sem upplýsingafulltrúi fyrir framkvæmdstjórn ESB í Óslo, verið verkefnisstjóri Evrópumála hjá Háskóla Íslands, framkvæmdastjóri Leikfélags Íslands í Iðnó og blaðamaður á Helgarpóstinum.
Eiríkur hefur um langt árabil rannsakað tengsl Íslands við umheiminn, með sérstaka áherslu á Evrópusamrunann. Eftir hann liggja fjölmörg rit á því sviði; bækur, ritgerðir, greinar og pistlar. Auk þess að hafa starfað sem háskólakennari til margra ára hefur Eiríkur flutt fjölda erinda og fyrirlestra á fræðasviði sínu hérlendis og erlendis. Árið 2005 kom út fyrsta skáldsaga hans, Glapræði, þarsem dregin er upp skopleg mynd af baksviði íslenskra stjórnmála og tilvistarkreppu nútímamannsins.
Skáldverk
Skáldsögur:
Glapræði, 2005: Skrudda
Rit almenns efnis
Fræðibækur:
Frá Evróvisjón til evru - allt um Evrópusambandið, 2009: Veröld
"Hið huglæga sjálfstæði þjóðarinnar" - áhrif þjóðernishugmynda á Evrópustefnu íslenskra stjórnvalda [Doktorsrannsókn], 2009: Stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands
Hvað með evruna? (ásamt Jóni Þór Sturlusyni), 2008: Háskólinn á Bifröst
Opið land - staða Íslands í samfélagi þjóðanna, 2007: Skrudda
Evrópusamruninn og Ísland - Leiðarvísir um samrunaþróun Evrópu og stöðu Íslands í evrópsku samstarfi, 2003: Háskólaútgáfan
