Höfundar
Emil Hjörvar Petersen
Um höfund
Emil Hjörvar Petersen er fæddur árið 1984. Hann er menntaður í bókmennta- og ritstjórnarfræðum, og hefur undanfarin ár getið sér gott orð sem ljóðskáld. Ljóðabækur hans tvær, Refur og Gárungagap, fengu lof gagnrýnenda og lesenda. Hann hefur auk þess verið virkur í ljóðastarfsemi á Íslandi og tekið þátt í fjölda upplestra og bókmenntaviðburða. Hann hefur auk þess fengist við ljóðaþýðingar, unnið sem ritstjóri á bókaforlagi og skrifað greinar og gagnrýni í ýmis bókmenntatímarit.
Árið 2010 kom út hans fyrsta skáldsaga Saga eftirlifenda – Höður og Baldur.
Forlag: Nykur
Skáldverk
Skáldsögur:
Saga eftirlifenda – Heljarþröm, 2012: Nykur
Saga eftirlifenda – Höður og Baldur, 2010: Nykur
Ljóð:
Refur, 2008: Nykur
Gárungagap, 2007: Nykur
