Höfundar
Einar Örn Gunnarsson
Autor
Einar Örn Gunnarsson er fæddur í Reykjavík 1961. Eftir stúdentspróf í Menntaskólanum í Hamrahlíð las hann lög við Háskóla Íslands um nokkurra ára skeið en sneri sér síðan að skrifum.
Eftir Einar Örn hafa komið út smásögur og skáldsögurnar Næðingur (1990), Benjamín (Almenna bókafélagið 1992), Draugasinfónían (Ormstunga 1996) og Tár paradísarfuglsins (Ormstunga 1998). Síðastnefnda skáldsagan kom út á litháísku vorið 2003 í þýðingu Jurgita Marija Abraityté. Bókmenntakynningarsjóður styrkti þá útgáfu.
Hann hefur birt efni í bókmenntatímaritinu Andblæ og var ritstjóri þess 1996.
Einar Örn hlaut sex mánaða styrk frá Künstlerdorf Schöppingen í Þýskalandi í apríl 1998, þar sem hann lagði lagði lokahönd á Tár paradísarfuglsins. Leikrit hans, Krákuhöllin, sem sýnt var í Nemendaleikhúsi Leiklistarskóla Íslands vorið 1999, hlaut frábærar viðtökur leikhúsgesta og gagnrýnenda.
Forlag: Ormstunga
Skáldverk
Skáldsögur:
Tár paradísarfuglsins: Bréf til mömmu, 1998: Ormstunga
Litháen, Rojaus Paukscio Asaros, 2003: Arlila
Draugasinfónían, 1996: Ormstunga
Benjamín, 1992: Almenna bókafélagið
Næðingur, 1990: Grágás
Smásögur:
Bréf til mömmu,1986: Höfundur
Gíslasaga, 1986: Höfundur
Leikverk
Leikrit:
Krákuhöllin (Leiklistarskóli Íslands 1999): Óútgefið
