Skáldahús

Gljúfrasteinn

Gljúfrasteinn var heimili og vinnustaður Halldórs laxness um hálfrar aldar skeið. Nú er það safn, þar sem ævi og verkum hans eru gerð skil.

Lesa meira

Nonnahús

Bernskuheimili rithöfundarins og jesúítaprestsins Jóns Sveinssonar “Nonna” ( 1857-1944) er í dag notalegt safn, í einu elsta húsi Akureyrar, með persónulegri móttöku.

Lesa meira

Reykholt í Borgarfirði

Reykholt í Borgarfirði er einn merkasti sögu- og minjastaður á Íslandi, ekki síst vegna rithöfundarins og fræðimannsins Snorra Sturlusonar, sem bjó þar frá 1206 til 1241. Þar er meðal annars hægt að kynna og rannsaka verk Snorra, miðaldamenningu, sögu staðarins og Borgarfjarðarhéraðs.

Lesa meira

Skriðuklaustur

Á Skriðuklaustri rekur Gunnarsstofnun menningarsetur í minningu rithöfundarins Gunnars Gunnarssonar. Þar er safn um Gunnar ásamt margvíslegum sýningum og menningarviðburðum sem sækja efnivið í skáldverk hans eða íslenska náttúru og sögu.

Lesa meira

Þórbergssetur

Þórbergssetur er byggt til minningar um rithöfundinn Þórberg Þórðarson. Þar er veitingasala, minjagripaverslun og tveir stórir sýningarsalir. Í öðrum salnum eru breytilegar sýningar en í hinum er sýning þar sem gestir fylgja æviferli Þórbergs Þórðarsonar.

Lesa meira

Útlit síðu: