Orðstír 2017. Veittur í annað sinn.

Forseti Íslands afhenti Victoriu Ann Cribb og Eric Boury heiðursverðlaun fyrir þýðingar íslenskra bókmennta á erlend mál. Heiðursverðlaunin Orðstír voru veitt á Bessastöðum 7. september.

Viðurkenningin er veitt einstaklingum sem hafa þýtt verk úr íslensku á annað mál með vönduðum hætti og með þeim árangri að aukið hafi hróður íslenskrar menningar á erlendum vettvangi. 

IMG_0171

Orðstír, heiðursverðlaun fyrir þýðingar íslenskra bókmennta á erlendar tungur, er veittur annað hvert ár í tengslum við Bókmenntahátíð. Viðurkenningin er veitt einstaklingum sem hafa þýtt verk úr íslensku á annað mál með vönduðum hætti og með þeim árangri að aukið hafi hróður íslenskrar menningar á erlendum vettvangi.

Íslenskar bókmenntir hafa verið í glæsilegri sókn á erlendum markaði síðustu tvo áratugi. Þar hafa margir lagt sitt af mörkum og of langt upp að telja allt það fólk sem hefur lagt hart að sér í þágu íslenskra bókmennta. Það starf væri þó ekki til neins ef Ísland ætti sér ekki vini á borð við þau Eric Boury frá Frakklandi og Victoriu Ann Cribb frá Englandi.

Bæði þýtt bækur eftir Sjón, Arnald og Andra Snæ

Victoria og Eric eru bæði mikilvirkir þýðendur með brennandi áhuga á íslenskum bókmenntum og tungu. Victoria er um þess­ar mundir að ljúka doktorsprófi í forníslensku frá Cambridge-háskóla og Eric sinnir íslenskukennslu við íslenskudeild Háskólans í Caen. Þau hafa bæði þýtt bækur eftir Sjón, Arnald Indriðason og Andra Snæ Magnason.

Victoria hefur líka þýtt Yrsu Sigurðardóttur og Steinunni Sigurðardóttur, Gyrði Elíasson og Torfa Tulinius. Eric hefur m.a. þýtt bækur eftir Jón Kalman Stefánsson, Einar Má Guðmundsson, Guðmund Andra Thorsson og Kristínu Ómarsdóttur svo nokkrir höfundar séu nefndir.

Samanlagt hafa farið frá þeim og eru væntanlegar einar 75 vandaðar þýðingar. Fjölhæfni þeirra og fagmennska er einstök og starf þeirra fyrir íslenskar bókmenntir ómetanlegt.

Komu fram í Ver­öld

Verðlaunahafarnir komu fram með íslenskum höfundum og öðrum þýðendum í Veröld, húsi Vigdísar Finnbogadóttur á Bókmenntahátíð í Reykjavík.

Við setningu alþjóðlegs þýðendaþings Miðstöðvar íslenskra bókmennta, mánudaginn 11. september í Veröld, fluttu þau bæði ávörp og sögðu frá störfum sínum sem þýðendur og þeim aukna áhuga sem íslenskar bækur og höfundar njóta í heimalöndum þeirra.

Aðstandendur Orðstírs

Að Orðstír standa Miðstöð íslenskra bókmennta, Bandalag þýðenda og túlka, Íslandsstofa, embætti Forseta Íslands og Bókmenntahátíð í Reykjavík. Í stjórn og valnefnd að þessu sinni sátu fyrir hönd þessara aðila þau Kristján Jóhann Jónsson, Magnea Matthíasdóttir, Kristjana Rós Guðjohnsen, Örnólfur Thorsson og Stella Soffía Jóhannesdóttir.