Útgáfustyrkir

Næsti umsóknarfrestur er 15. mars 2025

Umsóknarfrestur er einu sinni á ári; 15. mars.

Útgáfustyrkir eru veittir til útgáfu og miðlunar íslenskra ritverka, þar sem kappkostað er að styrkja verk sem hafa menningarlegt og þekkingarfræðilegt gildi. 

Umsóknareyðublaðið er aðgengilegt á rafrænu formi fjórum vikum fyrir auglýstan umsóknarfrest. SÆKJA UM.

Styrkirnir eru veittir útgefendum. 

Hægt er að skoða fyrri úthlutanir hér til hægri.

Umsóknareyðublaðið er aðgengilegt á rafrænu formi fjórum vikum fyrir auglýstan umsóknarfrest. SÆKJA UM.

Umsókn skulu fylgja eftirfarandi:

  • Kynning á höfundi.
  • Upplýsingar um verkið og sýnishorn úr handriti.
  • Afrit af undirrituðum samningi við höfund(a) / ritstjóra.
  • Afrit af undirrituðum samningum við aðra sem vinna að verkinu.

Athugið: Fylgi umbeðin gögn ekki umsókn, verður hún ekki tekin til greina.

Ekki er hægt að sækja um styrk fyrir bók sem komin er út.

Vakin er athygli á að listi yfir styrkþega er birtur opinberlega.

Birting merkis Miðstöðvar íslenskra bókmennta

Útgefendum er skylt að geta þess að verkið sé styrkt af Miðstöð íslenskra bókmennta og merki Miðstöðvarinnar skal vera vel læsilegt á upplýsingasíðu (kólófónsíðu) ritsins ásamt eftirfarandi texta á þennan hátt:

Útgáfa bókarinnar er styrkt af:

MIB-Einlina-Black

Merkinu er hægt að hlaða niður svörtu hér og gráu hér.

Varðandi greiðslu styrkja sjá nánar: Greiðslufyrirkomulag og skilmálar

Svör við umsóknum berast með tölvupósti 6 til 8 vikum eftir að umsóknarfrestur rennur út.