Um okkur

Hlutverk Miðstöðvar íslenskra bókmennta er að efla bókmenningu á Íslandi ásamt því að kynna íslenskar bókmenntir erlendis og stuðla að aukinni útbreiðslu þeirra.

Mikilvægur þáttur í starfi Miðstöðvar íslenskra bókmennta er úthlutun styrkja til útgáfu innanlands og þýðinga á íslensku og á erlend mál. Jafnframt eru veittir ferðastykir höfunda sem og dvalarstyrkir fyrir þýðendur úr íslensku í samstarfi við Rithöfundasamband Íslands.

Kynningarstarf Miðstöðvar íslenskra bókmennta erlendis felst m.a. í þátttöku í helstu bókasýningum og innanlands styður miðstöðin bókmenntakynningu og bókmenningu með samstarfi við fjölmarga innlenda aðila og með sérstökum átaksverkefnum.

Miðstöð íslenskra bókmennta hóf starfsemi í ársbyrjun 2013 og heyrir undir menningar- og viðskiptaráðuneytið. 

Afgreiðslutími skrifstofunnar er kl. 9 - 16 virka daga. 

Heimilisfang:
Miðstöð íslenskra bókmennta
Tryggvagötu 11, 2. hæð
101 Reykjavík 

Kennitala: 670907-2600
Sími: 552 8500
Tölvupóstfang: islit@islit.is