Nýræktarstyrkir 2015

Miðstöð íslenskra bókmennta veitti í dag sex nýjum höfundum Nýræktarstyrki, til útgáfu á verkum þeirra.

Miðstöð íslenskra bókmennta úthlutaði 2 milljónum króna í Nýræktarstyrki að þessu sinni. Sex höfundar hlutu styrki til útgáfu fimm verka. Styrkupphæð var 400.000 kr. Í ár barst 51 umsókn um Nýræktarstyrki frá 45 aðilum. 

Eftirtalin verk og höfundar hljóta Nýræktarstyrki 2015:

Að heiman

Skáldsaga
Höfundur: Arngunnur Árnadóttir 

Umsögn um verk og höfund:

„Reykjavíkurnætur og Reykjavíkurdætur öðlast nýtt líf í sumarnóttinni sem höfundur lýsir af miklu öryggi en jafnframt lifna fjarlægari slóðir. Knappur og sérstæður stíll nýtur sín vel í agaðri frásögn af manneskju í leit að samastað í tilverunni.“

Af hverju breytast allir í kringum mann þegar maður verður UNGLINGUR en ég er alltaf sama krúttið? 

Ungmennabók
Höfundar: Arnór Björnsson og Óli Gunnar Gunnarsson
Ritstjóri: Bryndís Björgvinsdóttir

Umsögn um verkið:

„Hér hafa þróttmiklir ungir listamenn, sem hafa þegar sannað sig í skapandi starfi, samið bráðskemmtilega, metnaðarfulla og frumlega bók. Höfundar lögðu upp með að semja áhugaverða sögu sem væri um leið uppflettirit fyrir unglinga og er óhætt að segja að þeim hafi tekist ætlunarverkið svo vel að eftir verði tekið.“

Glópagull og galdraskruddur 

Barnabók
Höfundur: Kristín Ragna Gunnarsdóttir 

Umsögn um verkið:

„Höfundur skapar hrífandi heim þar sem í spennandi ævintýri fyrir alla fjölskylduna mætast kunnuglegur íslenskur veruleiki, íslensk menningarsaga og nýstárleg nálgun við norræna goðafræði. Lipur, fyndin og raunsönn frásögn fyrir börn á öllum aldri sem státar af bráðskemmtilegu og vel mótuðu persónugalleríi.“

Himnaljós 

Smásögur
Höfundur: Áslaug Björt Guðmundardóttir

Umsögn um verkið:

„Með lágstemmdum en hrífandi prósa bregður höfundur upp ólíkum myndum af forgengileika lífsins, af einsemd, örvæntingu og uppgjöf. Myndirnar eru nístandi en eftir þungan lífróður má jafnvel finna hvíld.“

Sirkús

Skáldverk 
Höfundur: Júlía Margrét Einarsdóttir 

Umsögn um verkið:

„Úr öruggri höfn í Vesturbænum til framandi sirkúss í fjarlægu landi ferðast lesandinn um öldurót tilfinninga, í gegnum stórsjó vímu og geðsveiflna í sannkallaðri rússíbanareið. Frjór hugur og litríkur stíll höfundar nýtur sín vel í grípandi frásögn á mörkum draums og veruleika.“