Handhafar Íslensku bókmenntaverðlaunanna og Blóðdropans 2023

Steinunn Sigurðardóttir, Gunnar Helgason / Rán Flygenring og Haraldur Sigurðsson hljóta Íslensku bókmenntaverðlaunin 2023 fyrir verk sín. Eva Björg Ægisdóttir hlýtur Íslensku glæpasagnaverðlaunin Blóðdropann 2023.

1. febrúar, 2024

Forseti Íslands afhenti Íslensku bókmenntaverðlaunin og Blóðdropann við hátíðlega athöfn á Bessastöðum og í beinni útsendingu á RÚV þann 31. janúar. 

Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, afhenti Íslensku bókmenntaverðlaunin og Íslensku glæpasagnaverðlaunin Blóðdropann, við hátíðlega athöfn á Bessastöðum og í beinni útsendingu á RÚV þann 31. janúar.

Félag íslenskra bókaútgefenda annast framkvæmd og fjármögnun verðlaunanna. Verðlaunafé er ein milljón króna fyrir höfund hvers verðlaunaverks. Nýr verðlaunagripur, Blængur, blásvartur hrafn steyptur í kopar, eftir myndlistarmanninn Matthías Rúnar Sigurðsson, var afhentur verðlaunahöfum Íslensku bókmenntaverðlaunanna í fyrsta sinn.

Fjögurra manna lokadómnefnd valdi verkin úr hópi tuttugu bóka sem tilnefndar voru til verðlaunanna í desember á síðasta ári þegar fimm bækur voru tilnefndar í hverjum flokki. Lokadómnefnd skipuðu þau Hjalti Freyr Magnússon, Kristján Sigurjónsson, Steingerður Steinarsdóttir, Steinunn Valdís Óskarsdóttir og Kristín Ingu Viðarsdóttir, sem var formaður nefndarinnar.

Verðlaunahafar 2023


Í flokki skáldverka:

Bol_Steinunn_1706715743580

Steinunn Sigurðardóttir
Ból
Útgefandi: Mál og menning

Umsögn lokadómnefndar: Ból er efnismikil saga þrátt fyrir að bókin sé ekki ýkja löng. Viðfangsefnið er ástin í öllum sínum fjölbreyttu myndum, en líka missir, tengsl og tengslaleysi, hvort sem er við sjálfa sig eða aðra, umhverfi sitt og náttúru. Ferðalag söguhetjunnar rammar inn frásögnina sem um leið verður innri ferð hennar og uppgjör við lífið. Það er margt sem kraumar undir, líkt og í náttúrunni sem býr sig undir að gjósa, en ferðinni er heitið heim í unaðsreit fjölskyldunnar, Ból, sem er um það bil að verða náttúruöflunum að bráð. Steinunn vefur blæbrigðaríkan textavef sem heldur lesandanum föngnum allt frá upphafi, sagan snertir við honum og tilfinningarnar malla lengi eftir að lestrinum lýkur. Hið ósagða er oft jafn afhjúpandi og það sem sagt er og, líkt og í fyrri verkum Steinunnar, er leikandi írónía í bland við myndríka ljóðrænu einkennismerki textans. Þótt Ból sé að vissu leyti heimsendasaga ræður fegurðin för og það er hún sem situr fastast eftir.

Í flokki fræðibóka og rita almenns efnis:

Samfelag-eftir-mali_1706715933662

Haraldur Sigurðsson
Samfélag eftir máli: Bæjarskipulag á Íslandi og fræðin um hið byggða umhverfi
Útgefandi: Sögufélag

Umsögn lokadómnefndar: Samfélag eftir máli er yfirgripsmikið verk um sögu og þróun skipulagsmála á Íslandi, einkum í Reykjavík. Ritið byggir á langri og ítarlegri rannsóknarvinnu höfundar, framsetningin er aðgengileg og textinn einkar lipur. Skipulagsfræðin eru sett í samhengi við hugmyndasögu hvers tíma, svo og atvinnu- og lýðræðisþróun, einkum á vesturlöndum, og vísanir í íslenskar og alþjóðlegar bókmenntir og listir þétta verkið og gefa því breiðari skírskotun. Höfundur segir hlutlægt frá, en er gagnrýninn á stefnur og strauma og minnir lesendur oft á að engin algild sannindi eru til í þessum fræðum. Samfélag eftir máli er afar áhugaverð bók um manngert umhverfi okkar, sem skiptir sköpum fyrir samfélagsþróunina, umhverfismál og persónulega líðan okkar allra. Hún á erindi jafnt til fagfólks og almennings, er fagurlega hönnuð og ljóst að hugað er að umhverfisþáttum við gerð hennar.

Í flokki barna- og ungmennabóka:

 

Bannadaddrepa

Gunnar Helgason og Rán Flygenring, myndhöfundur
Alexander Daníel Hermann Dawidsson: Bannað að drepa
Útgefandi: Mál og menning

Umsögn lokadómnefndar: Í þessari þriðju bók í seríunni um Alexander er tekist á við stórar spurningar eins og titillinn ber með sér. Stríðsátök, sorg og missir eru í brennidepli en sagan hverfist um nýjan félaga Alexanders, Vola frá Úkraínu. Þessi flóknu málefni eru tækluð með húmor og hlýju þar sem sjónarhorn barnsins ræður för og lesandinn verður virkur þátttakandi í vangaveltum Alexanders. Þar tvinnast vel saman alþjóðlegur atburður og áhrif hans á líf venjulegs fólks á átakasvæðinu og hér heima á Íslandi. Þrátt fyrir grafalvarlegt söguefnið einkennist sagan af leiftrandi frásagnargleði, sem fjörlegar myndir Ránar Flygenring ýta svo enn frekar undir. Eins og í fyrri bókunum er persónusafnið fjölbreytt og litríkt og atburðarásin er spennandi. Bannað að drepa er bók sem er skrifuð af skilningi á hugarheimi barna og virðingu fyrir margbreytileika mannlífsins. Hún veitir ekki endilega einhlít svör við öllum spurningum en býður svo sannarlega upp á lifandi samræður barna og fullorðinna sem lesa hana saman.

Blóðdropann 2023 hlýtur:

Heim-fyrir-myrkur

 

Eva Björg Ægisdóttir
Heim fyrir myrkur
Útgefandi: Veröld

Umsögn lokadómnefndar: Heim fyrir myrkur er grípandi sálfræðitryllir sem erfitt er að leggja frá sér. Andrúmsloft óhugnaðar og dulúðar er listilega byggt upp og grunsemdum og efa sáð jöfnum höndum í huga lesanda. Sögusviðið er lifandi og vel er unnið úr sögulegum atburðum í bakgrunni frásagnarinnar. Þessi samfélagslegi vinkill, sem snertir á sögu vistheimila á Íslandi, er fléttaður við fjölskyldudrama og hversdagslíf ungs fólks í borgfirsku dreifbýli upp úr miðri síðustu öld og úr verður sannfærandi og afar spennandi frásögn með fjölbreyttu og breysku persónugalleríi. Frásagnaraðferðin er áhugaverð og ísmeygilega unnið með fyrstu persónu sjónarhorn söguhetju sem berst við að ráða í atburði, drauma og flókinn veruleika í nútíð og fortíð um leið og lesandinn berst við hrollinn sem læðist að honum og grípur hann sífellt fastari tökum.

 


Allar fréttir

Miðstöð íslenskra bókmennta veitir útgáfustyrki til nýrra íslenskra ritverka - 3. maí, 2024 Fréttir

Í ár var úthlutað tæplega 21 milljón króna í útgáfustyrki til 41 verks. Alls bárust 66 umsóknir og sótt var um heildarupphæð rúmlega 74 milljónir króna.

Nánar

Úthlutun úr barna- og ungmennabókasjóðnum Auði: 25 spennandi verk hljóta styrki - 3. maí, 2024 Fréttir

Miðstöð íslenskra bókmennta hefur úthlutað 8 millj.kr. til 25 verka árið 2024. Alls bárust 45 umsóknir og sótt var um 30,6 millj.kr.

Nánar

Úthlutun til þýðinga á íslensku; 28 styrkir veittir í fyrri úthlutun ársins - 3. maí, 2024 Fréttir

Í fyrri úthlutun ársins 2024 bárust 37 umsóknir til þýðinga á íslensku. Veittir voru 27 styrkir að upphæð 8,8 millj. kr. Seinni úthlutun ársins fer fram í nóvember. 

Nánar

Allar fréttir