Fréttir: 2017 (Síða 3)
Fyrirsagnalisti
Landsmenn gera lesturinn að lífsstíl. Úrslit í Allir lesa landsleiknum 2017
Allir lesa er landsleikur í lestri, með áherslu á orðið leikur og er tilgangurinn fyrst og fremst að vekja athygli á því hversu skemmtilegt það er að lesa. Allir lesa snýst þannig ekki um lestrarhraða eða fjölda blaðsíðna heldur er takmarkið fyrst og fremst að hvetja landsmenn til að verja tíma í yndislestur.
NánarMiðstöð íslenskra bókmennta á bókamessunni í London 14.-16. mars
Bókmenntakynningarstofur Norðurlandanna verða með sameiginlegan bás á bókamessunni í London, Miðstöð íslenskra bókmennta verður þar með Norla í Noregi, Fili í Finnlandi, Farlit í Færeyjum, Swedish Arts Council/Statens Kulturrad í Svíþjóð og Slots- og kulturstyrelsen/The Danish Arts Council í Danmörku.
NánarBókmenntaverðlaun og viðurkenningar fyrir árið 2016
Íslensku bókmenntaverðlaunin, tilnefningar til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs, Íslensku þýðingaverðlaunin, Fjöruverðlaunin og Bókmenntaverðlaun starfsfólks bókaverslana.
NánarAllir lesa landsleikurinn er hafinn, skráðu þig til leiks og vertu með!
Landsleikur í lestri verður á þorranum líkt og undanfarin ár eða frá 27. janúar, til konudagsins 19. febrúar 2017. Sú nýbreytni verður tekin upp í ár að auk liðakeppni verður jafnframt hægt að keppa sem einstaklingur. Svo nú verður ljóst hver er aðal lestrarhestur landsins. Vertu með og taktu þátt í skemmtilegum leik á Allir lesa
NánarHeildaryfirlit styrkja á árinu 2016. Hátt í 300 styrkir í átta flokkum
Á árinu 2016 úthlutaði stjórn Miðstöðvar íslenskra bókmennta um 270 styrkjum í átta flokkum og er það töluverð aukning frá fyrra ári í öllum flokkum. Sótt var um rúmar 160 milljónir og til úthlutunar voru 67 milljónir, eða rúmlega 40% af umsóttri upphæð.
Nánar- Fyrri síða
- Næsta síða