Myndbönd með íslenskum höfundum
Íslenskir rithöfundar ræða um íslenskar bókmenntir - á ensku og frönsku.
Miðstöð íslenskra bókmennta hefur í samvinnu við Íslandsstofu, utanríkisráðuneytið og fleiri framleitt myndbönd með íslenskum höfundum sem birtir sjónarhorn á hugarheim þeirra, með það að markmiði að færa þá nær lesendum sínum og vera um leið spegill á það samfélag sem höfundarverk þeirra er sprottið úr.
Hér á síðunni má sjá tvö myndbönd á ensku og eitt á frönsku.