Um okkur
Hlutverk Miðstöðvar íslenskra bókmennta er að efla bókmenningu á Íslandi, kynna íslenskar bókmenntir erlendis og stuðla að aukinni útbreiðslu þeirra.
Mikilvægur þáttur í starfi Miðstöðvar íslenskra bókmennta er úthlutun styrkja til útgáfu innanlands og þýðinga á íslensku og á erlend mál. Jafnframt eru veittir ferðastykir höfunda sem og dvalarstyrkir fyrir þýðendur úr íslensku í samstarfi við Rithöfundasamband Íslands.
Kynningarstarf Miðstöðvar íslenskra bókmennta erlendis felst m.a. í þátttöku í helstu bókasýningum og innanlands styður miðstöðin bókmenntakynningu og bókmenningu með samstarfi við fjölmarga innlenda aðila og með sérstökum átaksverkefnum.
Miðstöð íslenskra bókmennta hóf starfsemi í ársbyrjun 2013. Við stofnun hennar sameinuðust fyrrum Bókmenntasjóður sem starfað hafði frá árinu 2008 og verkefnið Sögueyjan Ísland (Sagenhaftes Island) sem hélt utan um heiðursþátttöku Íslands á Bókasýningunni í Frankfurt 2011.
Miðstöð íslenskra bókmennta heyrir undir menningar- og viðskiptaráðuneytið.
Afgreiðslutími skrifstofunnar er kl. 9 - 16 virka daga. Lokað er í hádeginu milli kl. 12 og 13.
Tryggvagötu 11, 2. hæð
101 Reykjavík
Kennitala: 670907-2600
www.islit.is
Miðstöð íslenskra bókmennta
Sími: 552 8500