Gagnagrunnur um íslenska höfunda og verk

Á bokmenntir.is, bókmenntavef Borgarbókasafns Reykjavíkur, er hægt að leita að upplýsingum um einstaka höfunda og verk þeirra. Þar má meðal annars lesa nýjar yfirlitsgreinar bókmenntafræðinga um höfunda, persónulega pistla sem höfundar skrifa fyrir vefinn, æviatriði, ritaskrár og brot úr verkum höfunda. Vefurinn er á íslensku og ensku.