Nýræktarstyrkir 2015
Miðstöð íslenskra bókmennta veitti í dag sex nýjum höfundum Nýræktarstyrki, til útgáfu á verkum þeirra.
Miðstöð íslenskra bókmennta úthlutaði 2 milljónum króna í Nýræktarstyrki að þessu sinni. Sex höfundar hlutu styrki til útgáfu fimm verka. Styrkupphæð var 400.000 kr. Í ár barst 51 umsókn um Nýræktarstyrki frá 45 aðilum.
Eftirtalin verk og höfundar hljóta Nýræktarstyrki 2015:
Að heiman
SkáldsagaHöfundur: Arngunnur Árnadóttir
Umsögn um verk og höfund:
„Reykjavíkurnætur og Reykjavíkurdætur öðlast nýtt líf í sumarnóttinni sem höfundur lýsir af miklu öryggi en jafnframt lifna fjarlægari slóðir. Knappur og sérstæður stíll nýtur sín vel í agaðri frásögn af manneskju í leit að samastað í tilverunni.“Af hverju breytast allir í kringum mann þegar maður verður UNGLINGUR en ég er alltaf sama krúttið?
UngmennabókHöfundar: Arnór Björnsson og Óli Gunnar Gunnarsson
Ritstjóri: Bryndís Björgvinsdóttir
Umsögn um verkið:
„Hér hafa þróttmiklir ungir listamenn, sem hafa þegar sannað sig í skapandi starfi, samið bráðskemmtilega, metnaðarfulla og frumlega bók. Höfundar lögðu upp með að semja áhugaverða sögu sem væri um leið uppflettirit fyrir unglinga og er óhætt að segja að þeim hafi tekist ætlunarverkið svo vel að eftir verði tekið.“Glópagull og galdraskruddur
BarnabókHöfundur: Kristín Ragna Gunnarsdóttir
Umsögn um verkið:
„Höfundur skapar hrífandi heim þar sem í spennandi ævintýri fyrir alla fjölskylduna mætast kunnuglegur íslenskur veruleiki, íslensk menningarsaga og nýstárleg nálgun við norræna goðafræði. Lipur, fyndin og raunsönn frásögn fyrir börn á öllum aldri sem státar af bráðskemmtilegu og vel mótuðu persónugalleríi.“Himnaljós
SmásögurHöfundur: Áslaug Björt Guðmundardóttir
Umsögn um verkið:
„Með lágstemmdum en hrífandi prósa bregður höfundur upp ólíkum myndum af forgengileika lífsins, af einsemd, örvæntingu og uppgjöf. Myndirnar eru nístandi en eftir þungan lífróður má jafnvel finna hvíld.“Sirkús
SkáldverkHöfundur: Júlía Margrét Einarsdóttir