Nýræktarstyrkir 2016
Í ár bárust 35 umsóknir um Nýræktarstyrki. Verkin sem sótt var um fyrir eru af ýmsum toga s.s. skáldsögur, leikrit, ljóð, barna- og ungmennabækur, smásögur og glæpasögur. í ár hlutu styrkina örsögur, smásögur og leikrit - sbr hér neðar.
Nýræktarstyrki Miðstöðvar íslenskra bókmennta hljóta að þessu sinni eftirtalin verk og höfundar. Hver styrkur var 400 þús kr:
Einsamræður
ÖrsögurHöfundur: Birta Þórhallsdóttir (f. 1989). Birta er MA nemandi í Ritlist við Háskóla Íslands, verkið er hluti af lokaverkefni hennar, sem hún hefur unnið undir leiðsögn Óskars Árna Óskarssonar.
Umsögn bókmenntaráðgjafa um verk og höfund:
„Kröftugar örsögur skrifaðar í afgerandi og öguðum stíl sem höfundur hefur einkar gott vald á. Textinn grípur lesandann með spennandi möguleikum og mótsögnum þar sem kunnuglegar aðstæður umbreytast og taka á sig hrífandi ævintýrablæ.“
Smáglæpir
Smásögur
Höfundur: Björn Halldórsson (f. 1983). Björn er með BA-gráðu í enskum og amerískum bókmenntum frá Háskóla East Anglia héraðs í Norwich, Englandi og MFA gráðu í skapandi skrifum frá Háskólanum í Glasgow.
Umsögn bókmenntaráðgjafa um verk og höfund:
„Vel skrifaðar og fagmannlega mótaðar smásögur. Höfundur þekkir smásagnaformið augsýnilega vel og kann þá list að segja ekki of mikið en skapa á sama tíma forvitnilega stemningu og andrúmsloft í sögum sem ná gríðarföstu taki á lesandanum.“
Afhending
LeikritHöfundur: Vilhjálmur Bergmann Bragason (f. 1988). Vilhjálmur hefur nýlokið MA námi í leikhúsbókmenntum og leikritun frá RADA, Royal Academy of Dramatic Arts í London.
Umsögn bókmenntaráðgjafa um verk og höfund:
„Athyglisverður og ögrandi leiktexti sem fyllir lesandann óhug og efasemdum um þá þróun sem er sýnd í samskiptum persónanna. Höfundurinn þekkir leikhúsið og leikritun og sýnir athyglisvert vald á forminu, eins og sést mæta vel á snörpum og vel skrifuðum samtölum þar sem dansað er á mörkum súrrealisma og óþægilegs raunsæis.“