Nýræktarstyrkir 2024

Miðstöð íslenskra bókmennta úthlutar tvemur Nýræktarstyrkjum í ár, hvor þeirra er 500.000 kr. Verkin sem hljóta viðurkenninguna nú eru skáldsaga og ljóðabók. 62 umsóknir bárust.

IMG_5914Nýræktarstyrki Miðstöðvar íslenskra bókmennta 2024 hljóta eftirtalin verk og höfundar:


Moldin heit

Höfundur: Birgitta Björg Guðmarsdóttir

Umsögn bókmenntaráðgjafa um verkið:

Moldin heit eftir Birgittu Björgu Guðmarsdóttur er forvitnileg og vel skrifuð skáldsaga um listsköpun, sorg og missi. Með ljóðrænum stíl eru dregnar upp sterkar og áhrifaríkar myndir um leið og leikið er skemmtilega með form textans þannig að hann minnir einum þræði á dans – eina af þeim listgreinunum sem eru í brennidepli sögunnar. Á áreynslulausan hátt flakkar frásögnin fram og aftur í tíma þannig að lesendur kynnast aðalpersónum verksins mæta vel og fá aukinn skilning á flóknum samskiptum þeirra við aðra.

Höfundur: Birgitta Björg Guðmarsdóttir (f.1998) hefur lokið BA prófi í íslenskum fræðum og lýkur nú meistaranámi í Ritlist við Háskóla Íslands. Birgitta er stofnmeðlimur hljómsveitarinnar Ólafur Kram sem sigraði Músíktilraunir árið 2021. Hún hefur birt sögur og ljóð í TMM og tímaritinu Leirburði en skáldsagan Skotheld kom út árið 2018. Hún er meðlimur í þverfaglega listahópnum Heysahorn og í ljóðakollektívinu MÚKK. Birgitta starfar sem bóksali.

IMG_2818

Þegar við vorum hellisbúar

Höfundur: Sölvi Halldórsson

Umsögn bókmenntaráðgjafa um verkið:

Þegar við vorum hellisbúar eftir Sölva Halldórsson er hugmyndarík ljóðabók, full af leikgleði þar sem myndmáli er beitt á snjallan og óvenjulegan hátt. Ljóðin mynda sterka heild sem fanga vel tilfinningar tengdar hversdagslegum samskiptum og fjölskylduböndum. Sölvi dregur einnig fram á athyglisverðan hátt flókin og óræð tengsl við minningar úr æsku og gerir tilraun til að afhjúpa nostalgíu og einfaldanir á fortíðinni.

Höfundur: Sölvi Halldórsson (f. 1999) er fæddur og uppalinn á Akureyri. Hann lauk BA prófi í íslensku og dönsku frá Háskóla Íslands árið 2019, og meistaraprófi í ritlist frá sama skóla árið 2024. Sölvi hefur skrifað bókmenntarýni fyrir Víðsjá og birt ljóð í Pastel ritröð og ýmsum safnritum, nú síðast Munnbita Ástarsögufélagsins. Sölvi býr í Reykjavík og er meðlimur í ljóðakollektívinu Múkk.

IMG_2816_1717760018828