Leiklist

Á Íslandi eru starfrækt mörg leikhús og leikhópar. Atvinnuleikhúsin þrjú eru Þjóðleikhúsið, Leikfélag Reykjavíkur í Borgarleikhúsinu og Leikfélag Akureyrar í höfuðstað Norðurlands. Samhliða þeim hafa ótal leikhópar kvatt sér hljóðs, til að mynda Vesturport – farandleikhópur sem stofnaður var 2001 og hefur síðan þá notið mikilla vinsælda og virðingar.