Ljósmyndun

Ljósmyndarar hafa lengi átt stóran þátt þátt í að miðla landslagi Íslands til umheimsins, en viðfangsefni íslenskra ljósmyndara hafa þó frá upphafi spannað víðara svið. Magnús Ólafsson (1862-1937) myndaði lífskjör, tækniframfarir og félagslegar breytingar við upphaf síðustu aldar, en Sigríður Zoëga (1889-1968) var í fremstu röð íslenskra portrettljósmyndara nokkru síðar, og Vigfús Sigurgeirsson (1900-1984) var einkum frægur fyrir landslagsmyndir sínar. Ljósmyndasafn Íslands í Þjóðminjasafni og Ljósmyndasafn Reykjavíkur varðveita mikið af áhugaverðu efni frá fyrstu kynslóðum íslenskra ljósmyndara.

Síðustu áratugi hefur blaðaljósmyndarinn Ragnar Axelsson (f. 1958, einnig þekktur sem RAX) unnið til fjölda verðlauna, auk þess sem hann hefur starfað sem ljósmyndari fyrir Morgunblaðið, National Geographic, Time, Life, Stern og Le Figaro. Guðmundur Ingólfsson (f. 1946) hefur meðal annars vakið athygli fyrir ljósmyndir af byggingum og manngerðu umhverfi í anda New Topographics-hreyfingarinnar amerísku. Fjölmargir íslenskir ljósmyndarar hafa síðan verið afkastamiklir við landslagsljósmyndun og bókaútgáfu, til að mynda Páll Stefánsson (f. 1958), Sigurgeir Sigurjónsson (f. 1948) og Guðmundur Páll Ólafsson (f. 1941).

Margir íslenskir listamenn fella ljósmyndir inn í nálgun sína, til að mynda Haraldur Jónsson (f. 1961), Hrafnkell Sigurðsson (f. 1963), Bjargey Ólafsdóttir (f. 1972), Katrín Elvarsdóttir (f. 1964) Gjörningaklúbburinn / Icelandic Love Corporation, Rúrí (f. 1951) og Gabríela Friðriksdóttir (f. 1971). Áður höfðu meðlimir SÚM-hópsins vakið athygli fyrir ljósmyndaverk, og má þar nefna Sigurð Guðmundsson (f. 1942) og Hrein Friðfinsson (f. 1943).

Veturinn 2011 opnaði sýningin EI(land), sem er samstarfsverkefni fimm íslenskra rithöfunda og fimm pólskra ljósmyndara af yngri kynslóðinni úr hópnum Sputnik Photos. Pólsku ljósmyndararnir ferðuðust vítt og breitt um landið undir leiðsögn rithöfundanna og afrakstur ferðalagsins varð ljósmyndasýning og bók þar sem tekist er á við íslenskan veruleika og staðalímyndir í gegnum mynd og texta. Sýningin var sett upp á Íslandi í mars 2011 og ferðast utan til Póllands í apríl sama árs.

Að verkefninu komu rithöfundarnir Sindri Freysson, Hermann Stefánsson, Huldar Breiðfjörð, Kristín Heiða Kristinsdóttir og Sigurbjörg Þrastardóttir. Ljósmyndararnir pólsku voru Adam Pańczuk, Agnieszka Rayss, Jan Brykczyński, Michał Łuczak og Rafał Milach. Hluti sýningarinnar hlaut önnur verðlaun fyrir myndröð ársins í ljósmyndasamkeppninni Pictures of the Year International. Frekari upplýsingar um verkefnið má nálgast á heimasíðunni www.icelandictales.sputnikphotos.com.