Tíska, hönnun og byggingalist

Sérstaða núverandi tísku- og iðnhönnunar ásamt arkitektúr byggir að stórum hluta á legu landsins. Þrátt fyrir áhrif beggja vegna Atlantshafsins gerir einangrunin íslenskum hönnuðum og arkitektum kleift að þróa sinn eigin sjálfstæða stíl.

Fjölbreytt litróf landslagsins og síbreytileg áferð yfirborðsins veita tískuhönnuðum innblástur til jafns við fornar hefðir og nútímalegan lífsstíll.

Í tískuhönnuninni er notast við ýmis afbrigði lita á borð við hvítt, fjólublátt, grænt, brúnt og grátt sem í réttri birtu líkjast litum í íslenska hálendinu. Bryddingarborðar og skrautlegir kragar úr tjulli minna á snjó eða jökulsprungur. Saumað er úr efni sem lítur út fyrir að hafa velkst um í sjónum, þornað í fjörunni, síðan verið teygt og ofið. Og karlmannlegum eiginleikum er tvinnað saman við kvenleg snið, eða hönnun kvöld- og hversdagsfatnaðar er þannig háttað að hægt sé að blanda einstökum hlutum saman og jafnvel frá mismunandi fatalínum. Allt þetta einkennir íslenskan fataiðnað.

Frekari upplýsingar um íslenska hönnun er að finna á vef Hönnunarmiðstöðvar.