Nýræktarstyrkir

Næsti umsóknarfrestur rennur út 15. apríl 2025 klukkan 15

Umsóknarfrestur er einu sinni á ári.

Árlega veitir Miðstöð íslenskra bókmennta Nýræktarstyrki fyrir skáldverk höfunda sem eru að stíga sín fyrstu skref á ritvellinum, óháð aldri, til að hvetja þá til frekari dáða á þeirri braut. Átt er við skáldverk í víðri merkingu; sögur, ljóð, leikrit og fleira. Nýræktarstyrkir hafa verið veittir frá árinu 2008. Valið er úr innsendum handritum.

Umsóknareyðublaðið er aðgengilegt á rafrænu formi fjórum vikum fyrir auglýstan umsóknarfrest. SÆKJA UM.

 Umsóknareyðublaðið er aðgengilegt á rafrænu formi fjórum vikum fyrir auglýstan umsóknarfrest. SÆKJA UM.

Umsókn skulu fylgja eftirfarandi gögn:

  • Kynning á höfundi
  • Upplýsingar um verkið
  • Handrit eða sýnishorn úr handriti

Svör við umsóknum um Nýræktarstyrki berast með tölvupósti eigi síðar en 6 vikum eftir að umsóknarfrestur rennur út.

Vakin er athygli á að listi yfir styrkþega er birtur opinberlega.

Birting merkis Miðstöðvar íslenskra bókmennta

Verði verkið gefið út er útgefanda skylt að geta þess að það hafi hlotið Nýræktarstyrk Miðstöðvar íslenskra bókmennta og merki Miðstöðvarinnar skal vera vel læsilegt á upplýsingasíðu (kólófónsíðu) ritsins ásamt eftirfarandi texta á þennan hátt:

Verkið hlaut Nýræktarstyrk frá:

MIB-Einlina-BlackMerkinu er hægt að hlaða niður svörtu hér og gráu hér.

Sjá úthlutanir frá upphafi hér á síðunni.