Nýræktarstyrkir 2020

Miðstöð íslenskra bókmennta úthlutar fjórum Nýræktarstyrkjum í ár, hver þeirra er 500.000 kr. Verkin sem hljóta viðurkenninguna í ár eru tvær ljóðabækur, furðusaga og smásögur. 57 umsóknir bárust.

Eftirtalin verk og höfundar hljóta Nýræktarstyrki 2020:

IMG_8304

500 dagar af regni

Smásögur

Höfundur: Aðalsteinn Emil Aðalsteinsson (f. 1994) ólst upp í Kópavogi og er búsettur þar. Á undanförnum misserum hafa birst eftir hann smásögur í ýmsum tímaritum, þ.á.m. TMM og Stínu, en einnig hefur hann, ásamt öðrum, ritstýrt menningartímaritinu Skandala um hríð. Aðalsteinn hefur skrifað greinar um bókmenntir og listir og komið fram í menningartengdum hlaðvarps- og útvarpsþáttum.

Umsögn bókmenntaráðgjafa um verkið:

500 dagar af regni er safn níu smásagna úr íslenskum samtíma þar sem dregin eru fram lykilaugnablik í lífi venjulegs fólks. Höfundur hefur gott vald á smásagnaforminu sem hann notar til að bregða ljósi á hinar myrku hliðar mannsins. Næmt auga fyrir smáatriðum magnar upp ískyggilegt andrúmsloft þar sem örlögin vega salt innan ramma hversdagsins.

Taugaboð á háspennulínu

Ljóðabók

IMG_8309

Höfundur: Arndís Lóa Magnúsdóttir (f. 1994) er með BA próf í frönsku, með bókmenntafræði sem aukagrein, og stundar meistaranám í þýðingafræði við Háskóla Íslands. Hún hefur alltaf haft mikinn áhuga á tjáningu og tungumálum og fengist við þýðingar úr ýmsum málum meðfram náminu, þó aðallega bókmenntatexta úr frönsku. Arndís Lóa hefur skrifað sögur fyrir börn og svo ljóð og smásögur í seinni tíð, enn óbirt.

Umsögn bókmenntaráðgjafa um verkið:

Taugaboð á háspennulínu er tvískipt ljóðabók sem fjallar um tjáningu, einangrun og einmanaleika. Ljóðin eru ort af öryggi og hugvitssemi, meðal annars frá sjónarhóli ómálga barns og eldri manneskju sem er að tapa málinu. Höfundur dregur upp ljóslifandi myndir sem koma oft á óvart og býr til heildstæðan og marglaga heim þar sem hið kunnuglega verður framandi.

Skuggabrúin

Furðusaga

IMG_8312

Höfundur: Guðmundur Ingi Markússon (f. 1969) er með meistaragráðu í trúarbragðafræðum frá Árósaháskóla með táknfræði sem aukafag og stundaði framhaldsnám í mannfræði við Queen‘s háskólann í Belfast. Hann hefur stýrt verkefnum sem lúta að Evrópusamstarfi í menntun og menningu, sinnt fræðimennsku auk þess að fást við skáldskap. Áhugasvið Guðmundar liggja helst á sviði furðusagna og vísindaskáldskapar, en einnig goðsagna og barna- og ungmennabókmennta.

Umsögn bókmenntaráðgjafa um verkið:

Skuggabrúin er furðusaga sem er jafnt skrifuð fyrir fullorðna sem ungmenni. Margvísleg átök milli ljóss og skugga, sýndar og reyndar, berast víða um ísilagt norðurhvelið en eiga sér líka stað í huga persónanna. Í þéttofnum texta er dregin upp margbrotin og vandlega útfærð heimsmynd þar sem afar blæbrigðaríkur stíll gerir umhverfið og náttúruöflin áþreifanleg.

Þagnarbindindi

Ljóðsaga

IMG_8307

Höfundur: Halla Þórlaug Óskarsdóttir (f. 1988) hefur unnið sem dagskrárgerðarmaður á Rás 1, stýrt menningarþáttunum Víðsjá, Tengivagninum og Bók vikunnar, auk þess að sinna umfjöllun um barna- og unglingabækur í þættinum Orð um bækur. Hún útskrifaðist með BA gráðu í myndlist og úr ritlist við Háskóla Íslands árið 2014. Halla Þórlaug hefur skrifað leikrit, einstaka ljóð og smásögu sem sum hafa birst í TMM eða í safnritum ritlistarnema.

Umsögn bókmenntaráðgjafa um verkið:

Ljóðsagan Þagnarbindindi miðlar hugarheimi konu sem reynir að ná tökum á minningum um missi og ótta, um samskipti við konurnar sem hafa verið henni nánastar og henda reiður á svo mörgu sem hún hefur aldrei sagt. Á yfirborðinu hafa ljóðin lágstemmt yfirbragð hversdagsraunsæis en markvisst myndmál og athuganir undirstrika sársaukann í þögninni og tilfinningalega dýpt undir kyrrlátu yfirborðinu.