Góður NordLit fundur í Helsinki

Árlega fer fram sameiginlegur vinnufundur starfsfólks norrænu bókmenntamiðstöðvanna, til skiptis í höfuðborgum landanna, að þessu sinni í Helsinki.

26. janúar, 2026

Árlega fer fram sameiginlegur vinnufundur starfsfólks norrænu bókmenntamiðstöðvanna, til skiptis í höfuðborgum landanna, að þessu sinni í Helsinki.

  • Nordlit-hopmynd-2026

Samtök norrænu bókmenntamiðstöðvanna, NordLit, hafa átt gott og gjöfult samstarf um árabil með það sameiginlega markmið að stuðla að auknum sýnileika og útbreiðslu norrænna bókmennta, með ýmsum hætti og miðstöðvarnar geta lært mikið hver af annarri.

Árlega fer fram sameiginlegur vinnufundur starfsfólks norrænu bókmenntamiðstöðvanna, til skiptis í höfuðborgum landanna, að þessu sinni í Helsinki.

Fundurinn fór fram dagana 21.-23. janúar og að þessu sinni voru Finnar (FILI) gestgjafar fundarins. Á fundinum voru saman komnir 15 fulltrúar bókmenntamiðstöðva allra Norðurlandanna.

Dagskrá fundarins var fjölbreytt og samanstóð af vinnustofum, fyrirlestrum sérfræðinga, bókakynningum og fleira. Auk þess fór hópurinn í eftirminnilega heimsóknir á heimili og vinnustofu rithöfundarins Jörn Donner og arkitektsins Alvars Aalto.

Hverjir eru í NordLit?

Auk Miðstöðvar íslenskra bókmennta eru eftirtaldar miðstöðvar í samtökunum: Norla í Noregi, Fili í Finnlandi, FarLit í Færeyjum, Statens Kulturråd/Swedish Arts Council í Svíþjóð og Slots-og kulturstyrelsen/The Danish Arts Council í Danmörku og Greenlit í Grænlandi.

Samvinna innan NordLit á mörgum sviðum

Meðal samstarfsverkefna NordLit er sameiginlegur bás Norðurlandanna á bókamessunni í Frankfurt og NordLit skipuleggur auk þess ýmis samvinnuverkefni, þýðendaþing, útgefendaskipti, kynningarverkefni, starfsmannaskipti, útgáfu safnrita og fleira.

Norrænir þýðingastyrkir

Jafnframt vinnur NordLit saman að styrkveitingum til þýðinga á norræn mál og annast danska bókmenntamiðstöðin utanumhald norrænna þýðingastyrkja fyrir hönd Norrænu ráðherranefndarinnar. Hún útdeilir styrkfénu til hinna systurskrifstofanna, sem veita styrkina í sínu landi.


Allar fréttir

Barna- og ungmennabókahöfundar verða áberandi í erlendri kynningu - 12. janúar, 2026 Fréttir

Nýtt kynningarrit um íslenska barna- og ungmennabókahöfunda í vændum, þátttaka í barnabókamessunni í Bologna og aukinn stuðningur við þýðingar barna- og ungmennabóka á erlend mál. 

Nánar

Viðburðaríkt ár hjá Miðstöð íslenskra bókmennta - 8. janúar, 2026 Fréttir

Á árinu veitti Miðstöð íslenskra bókmennta 70 milljónir króna í styrki til bókaútgáfu, innlendra og erlendra þýðinga, ferðalaga höfunda og í nýræktarstyrki. Kynningarstarf erlendis var öflugt og einkenndist af bókamessum, fundahöldum með erlendum útgefendum og gjöfulu samstarfi með þýðendum og sendiráðum. 

Við bjóðum nýtt ár velkomið og hlökkum til komandi verkefna, enn fleiri bóka!

Nánar

Allar fréttir