Íslensku bókmenntaverðlaunin og Blóðdropinn 2025 afhent

Sigrún Pálsdóttir, Kristín Svava Tómasdóttir, Ævar Þór Benediktsson og Margrét S. Höskuldsdóttir hljóta verðlaun fyrir verk sín.

12. febrúar, 2026

Forseti Íslands, Halla Tómasdóttir afhenti Íslensku bókmenntaverðlaunin og Íslensku glæpasagnaverðlaunin Blóðdropann, við hátíðlega athöfn á Bessastöðum og í beinni útsendingu á RÚV þann 11. febrúar.

Forseti Íslands, Halla Tómasdóttir, afhenti Íslensku bókmenntaverðlaunin og Íslensku glæpasagnaverðlaunin Blóðdropann, við hátíðlega athöfn á Bessastöðum og í beinni útsendingu á RÚV þann 11. febrúar síðastliðinn.

Verðlaunin nema einni milljón króna fyrir hvert verðlaunaverk og eru kostuð af Félagi íslenskra bókaútgefenda. Verðlaunagripurinn Blængur er blásvartur hrafn steyptur í kopar, eftir myndlistarmanninn Matthías Rúnar Sigurðsson. 

Fjögurra manna lokadómnefnd valdi verkin úr hópi tuttugu bóka sem tilnefndar voru til verðlaunanna í desember á síðasta ári þegar fimm bækur voru tilnefndar í hverjum flokki. Lokadómnefnd skipuðu þau Andri Már Sigurðsson, Ásrún Matthíasdóttir, Dagrún Ósk Jónsdóttir, Davíð Roach Gunnarsson og Ástráður Eysteinsson, sem var formaður nefndarinnar.

Mynd: Morgunblaðið/Karítas 
Forseti Íslands Halla Tómasdóttir, Kristín Svava Tómasdóttir, Elín Elísabet Einarsdóttir, Ævar Þór Benediktsson, SIgrún Pálsdóttir, Margrét S. Höskuldsdóttir, Logi Már Einarsson menningarráðherra, Heiðar Ingi Svansson formaður Félags íslenskra bókútgefenda. 

Verðlaunahafar Íslensku bókmenntaverðlaunanna 2025

Í flokki skáldverka: 

Skald-Blai-PardusinnSigrún Pálsdóttir
Blái pardusinn: hljóðbók
Útgefandi: Mál og menning

Umsögn lokadómnefndar:
Blái pardusinn er djörf formtilraun í íslenskum bókmenntum. Bókin ber undirtitilinn Hljóðbók, sem vísar til vinsællar sagnamiðlunar í seinni tíð en hún á sér jafnframt eldri fyrirmyndir, til dæmis í útvarpi og við rúmstokk barna. Í verki Sigrúnar er hljóðið flutt yfir í bókartexta, í verki þar sem þrír hlustendur bókarinnar koma við sögu. Tvö þeirra hafa reyndar misst af drjúgum hluta hennar en þriðji hlustandinn kemur þeim til aðstoðar og þar með má segja að hugtakið „hljóðbók“ hafi teygt sig yfir í endursögn og samræður um inntak og gildi skáldverka, í þessu tilviki um örlög aðalpersónunnar, einfarans og heimskonunnar Lönu Marteinsdóttur. Hún stóð á sínum tíma frammi fyrir brothættri heimsmynd á sögulegum átakatímum; mynd sem er um margt að teiknast upp að nýju um þessar mundir. Á einum stað í textanum er vikið að „skurðpunkti skáldskapar og sagnfræði“ og sagan sjálf spyr ögrandi spurninga um einmitt þennan skurðpunkt sem og hin ýmsu tengsl sögulegs skilnings, máttar skáldskaparins og lífsferils mannverunnar. Blái pardusinn er ögrandi og spennandi bók – og það gildir um hana, eins og lífið, að lesandi fær ekki að vita allt.

Fraedi-Froken-DullaÍ flokki fræðibóka og rita almenns efnis: 

Kristín Svava Tómasdóttir
Fröken Dúlla: ævisaga
Útgefandi: Benedikt bókaútgáfa

Umsögn lokadómnefndar:

Starf Jóhönnu Knudsen á vegum hins opinbera í Reykjavík á tímum síðari heimsstyrjaldar hefur ekki hlotið góð eftirmæli, svo vægt sé til orða tekið. Hún hefur verið umtöluð sem harðsnúinn siðgæðisvörður, jafnvel þannig að ætla mætti að hún hafi borið meginábyrgð á viðbrögðum íslenskra stjórnvalda við „ástandinu“ svokallaða. Í bókinni Fröken Dúlla fjallar Kristín Svava Tómasdóttir ítarlega og vafningalaust um þessi verkefni hjúkrunarkonunnar sem gerðist lögreglukona um hríð, og þannig veitir höfundurinn lesendum sínum tækifæri til að ígrunda þetta hlutverk Jóhönnu frá mismunandi sjónarhornum. En það gerðist margt annað áhugavert í lífi Jóhönnu og í verki sínu birtir Kristín Svava marghliða og heildstæða mynd af öllum æviferli þessarar konu sem var í senn óvenjuleg og sjálfstæð en jafnframt einlæg fjölskyldumanneskja. Þetta er sérstaklega vel skrifuð, víðsýn og grípandi ævisaga, unnin af fræðilegri alúð og hæfileika til að tengja persónusögu Jóhönnu við umfangsmikið breytingaskeið íslensks þjóðfélags.

Barna-SkolastjorinnÍ flokki barna- og ungmennabóka: 

Ævar Þór Benediktsson og Elín Elísabet Einarsdóttir myndhöfundur
Skólastjórinn
Útgefandi: Mál og menning

Umsögn lokadómnefndar:
Hið ómögulega gerist: 12 ára drengur, Salvar að nafni, sækir um embætti skólastjóra og fær starfið. Með lista fullan af hugmyndum og viljann að vopni reynir hann sitt besta til að bæta líðan nemenda, til dæmis með því að hafa kandífloss í hádegismat og grís í hverjum bekk. Þetta er galsafengin og bráðskemmtileg en einnig vel unnin og íhugul saga um lykilstofnun þjóðfélagsins, þar sem börn, unglingar, skólastarfsfólk og foreldrar eiga mikilvæg og margvísleg samskipti. Lesendur eru jafnframt hvattir til umhugsunar um vald, skilning, ábyrgð, viðmót og samvinnu á slíkum stað. Persónur bókarinnar eru fjölbreyttar og marglaga en eiga það sameiginlegt að vilja gera það sem er skólanum fyrir bestu, þótt þær séu ekki endilega sammála um brýnustu viðfangsefnin hverju sinni.

Blóðdropinn - glæpasagnaverðlaun 2025: 

 

Blod-Lokar-augum-blamMargrét Höskuldsdóttir
Lokar augum blám
Útgefandi: Vaka Helgafell

Umsögn lokadómnefndar:
Skáldsagan Lokar augum blám gerist á sjö dögum á Vestfjörðum. Hvarf tveggja manna ýtir af stað lögreglurannsókn. Í stuttum og snörpum köflum kynnast lesendur umtalsverðum fjölda fólks á ýmsum stöðum. Innbyrðis tengsl kaflanna skýrast smám saman og með þeim fléttar höfundar atburðarás vikunnar haganlega, ásamt atriðum úr forsögu og fyrri kynnum persónanna. Velheppnað raunsæissnið sögunnar byggist meðal annars á hinu vestfirska umhverfi sem höfundur endurskapar af staðarþekkingu og næmni sem skilar sér í vel skrifuðum texta. Spennan í verkinu er hins vegar tengd tímanum. Hann lætur ekki hemja sig og teygir sig út fyrir viðburði þessarar viku, aftur í fortíð þar sem reynast vera sár og draugar er virðast ætla að vakna til nýs lífs.


Allar fréttir

Góður NordLit fundur í Helsinki - 26. janúar, 2026 Fréttir

Árlega fer fram sameiginlegur vinnufundur starfsfólks norrænu bókmenntamiðstöðvanna, til skiptis í höfuðborgum landanna, að þessu sinni í Helsinki.

Nánar

Barna- og ungmennabókahöfundar verða áberandi í erlendri kynningu - 12. janúar, 2026 Fréttir

Nýtt kynningarrit um íslenska barna- og ungmennabókahöfunda í vændum, þátttaka í barnabókamessunni í Bologna og aukinn stuðningur við þýðingar barna- og ungmennabóka á erlend mál. 

Nánar

Allar fréttir