Auglýst eftir umsóknum um Nýræktarstyrki - umsóknarfrestur er til 19. apríl
Miðstöð íslenskra bókmennta veitir árlega Nýræktarstyrki fyrir skáldverk höfunda sem eru að stíga sín fyrstu skref á ritvellinum, óháð aldri, til að hvetja þá til frekari dáða á þeirri braut.
Átt er við skáldverk í víðri merkingu; sögur, ljóð, leikrit og fleira. Nýræktarstyrkir hafa verið veittir frá árinu 2008; tveir til fimm styrkir í hvert sinn og valið er úr innsendum umsóknum.
Nánari upplýsingar og umsóknareyðublöð má finna hér.