Reykjavík útnefnd Bókmenntaborg UNESCO

– komin í hóp skapandi borga á heimsvísu

5. ágúst, 2011

Reykjavíkurborg hefur verið útnefnd ein af Bókmenntaborgum UNESCO. „Þetta er mikill heiður fyrir Reykjavík,“ segir Jón Gnarr borgarstjóri.

bokmenntaborgReykjavíkurborg hefur verið útnefnd ein af Bókmenntaborgum UNESCO. Tilkynning þess efnis barst borgarstjóra og Menningar- og ferðamálasviði borgarinnar þann 4. ágúst 2011. Í útnefningunni segir meðal annars að Reykjavík státi af framúrskarandi bókmenntahefð í formi ómetanlegra miðaldabókmennta sem varðveittar eru í borginni og eru Íslendingasögurnar, Eddukvæði og Íslendingabók nefnd sérstaklega. Þá segir að þessi rótgróna hefð sýni sig í varðveislu, miðlun, bókmenntakennslu og kynningu bókmennta í dag. Einnig er tekið til þess að svo fámenn borg sinni bókmenntum af svo miklum krafti sem raun ber vitni, með þátttöku og samvinnu ólíkra aðila sem koma að bókmenningu og miðlun bókmennta, svo sem útgefenda, bókasafna og rithöfunda.

„Ég fagna því innilega að Reykjavík skuli hafa verið valin bókmenntaborg UNESCO. Þetta er mikill heiður fyrir Reykjavík. Íslendingar eru þekktir fyrir listir og menningu út um allan heim og þetta er staðfesting á því hvað menning okkar er verðmæt. Af öllum okkar auðæfum er menningin dýrmætust,“ segir Jón Gnarr borgarstjóri.

Sem Bókmenntaborg UNESCO mun Reykjavíkurborg, ásamt samstarfsaðilum sínum, renna enn frekari stoðum undir bókmenninguna í borginni, meðal annars með því að koma á fót miðstöð orðlistar í Reykjavík og lifandi vettvangi fyrir bókmenntaviðburði og dagskrár af öllum toga auk þess sem lestrarhvetjandi verkefni og samstarf við skóla mun skipa veglegan sess. Sérstök áhersla verður lögð á að styrkja ímynd Reykjavíkur sem bókmenntaborgar bæði innan lands og utan, bókmenntaslóðir verða til að mynda merktar á íslensku og ensku, haldið verður áfram að bjóða upp á bókmenntagöngur á íslensku og ensku og þær verða einnig gerðar aðgengilegar á rafrænu formi. Reykjavíkurborg leggur áherslu á góða samvinnu við alla þá mörgu aðila sem koma að bókmenningu í borginni, því Bókmenntaborgin Reykjavík er fyrst og fremst sameign þeirra allra svo og íbúa borgarinnar. Einnig horfir hún björtum augum til öflugs samstarfs við aðrar Skapandi borgir UNESCO.

Ali Bowden, framkvæmdastjóri Bókmenntaborgarinnar Edinborgar segir: „Við erum himinlifandi yfir því að Reykjavík hafi sé komin í hóp Bókmenntaborga UNESCO. Útnefningin mun eiga þátt í að vekja athygli á bókmenntum og bókmenntalífi borgarinnar út um allan heim. Hún mun stuðla að menningarlegum vexti borgarinnar líkt og gerst hefur í Edinborg og Reykjavík verður mikilvægur samstarfaðili í okkar alþjóðlega samstarfsneti.“

Reykjavík er fimmta borgin í heiminum til að hljóta þennan merka titil, en fyrir í samtökum Bókmenntaborga UNESCO eru Edinborg í Skotlandi, Iowa City í Bandaríkjunum, Melbourne í Ástralíu og Dublin á Írlandi. Reykjavík er því fyrsta borgin utan enska tungumálasvæðisins til að hljóta titilinn, sem er varanlegur að því tilskyldu að borgirnar standi undir skuldbindingum sínum. Bókmenntaborgirnar eru hluti af stærra neti Skapandi borga UNESCO og er Reykjavík 29. borgin til að fá aðild að samtökunum. Menningar- og ferðamálasvið Reykjavíkur hafði veg og vanda af umsóknarferlinu fyrir hönd Reykjavíkurborgar undir forystu Svanhildar Konráðsdóttur sviðsstjóra. Verkefnisstjórar og höfundar umsóknar eru þær Auður Rán Þorgeirsdóttir og Kristín Viðarsdóttir. Í stýrihópi voru einnig fulltrúar frá Rithöfundasambandi Íslands, Félagi íslenskra bókaútgefenda, Bókmenntasjóði, Hugvísindasviði Háskóla Íslands, Borgarbókasafni og Menntasviði Reykjavíkur.

Bókmenntaborginni Reykjavík verður formlega hleypt af stokkunum á Alþjóðlegu bókmenntahátíðinni í Reykjavík í september næstkomandi og einnig mun hún verða kynnt alþjóðlega með fjölbreyttum hætti á Bókasýningunni í Frankfurt í október í samvinnu við Sögueyjan Ísland.


Allar fréttir

Nanna Rögnvaldardóttir hlýtur Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur í ár - 4. september, 2025 Fréttir

Flóttinn á norðurhjarann fjallar um mæðgur sem þurfa að flýja erfiðar aðstæður og takast á við margar hindranir í leit sinni að betra lífi. Söguhetjan er stelpa sem í upphafi sögu er tólf ára gömul og sagan er alfarið sögð frá hennar sjónarhorni sem gerir lesendum auðveldara að setja sig í hennar spor. Sagan gerist undir lok 18. aldar í kjölfar Móðuharðindanna og margvíslegra erfiðleika af þeirra sökum.

Nánar

Ást, losti og dramatík eru þemu bókamessunnar í Gautaborg í ár - 1. september, 2025 Fréttir

Eiríkur Örn Norðdahl og Yrsa Sigurðardóttir taka þátt í viðburðum á bókamessunni í Gautaborg í ár.  Leikritun og leikritaskrif eru einnig í kastljósinu á hátíðinni og leikskáldin Birgir Jón Sigurðsson og Hrafnhildur Hagalín segja frá verkum sínum, sköpunarferli og íslenskri leikhúsmenningu. 

Nánar

Upplýsingar um allar íslenskar bækur á frönsku og sænsku aðgengilegar - 19. ágúst, 2025 Fréttir

Dr. Hanna Steinunn Þorleifsdóttir, fyrrum yfirmaður norrænu deildarinnar við háskólann í Caen í Frakklandi heldur úti athyglisverðum vef með upplýsingum um allar þýðingar sem komið hafa út á frönsku og  John Swedenmark þýðandi hefur haft veg og vanda af sambærilegum  sænskum vef samvinnu við íslenska sendiráðið í Stokkhólmi og fleiri.

Nánar

Allar fréttir