Ísland og Litháen í fókus á Les Boréales í nóvember

9. júlí, 2013

Hópur íslenskra rithöfunda og myndlistar-, tónlistar- og kvikmyndagerðarfólks hefur verið boðinn á frönsku bókmennta- og menningarhátíðina Les Boréales í Caen í Frakklandi í nóvember.

Les Boréales 2013

Hópur íslenskra rithöfunda og myndlistar-, tónlistar- og kvikmyndagerðarfólks hefur verið boðinn á frönsku bókmennta- og menningarhátíðina Les Boréales í Caen í Frakklandi í nóvember en í ár verða Ísland og Litháen í brennidepli. Þetta verður í 22. skiptið sem hátíðin er haldin en hún hefur frá upphafi beint sjónum að bókmenntum og menningu Norður- og Eystrarslanda. Miðstöð íslenskra bókmennta styrkir hátíðina vegna þátttöku íslenskra höfunda í dagskrá hátíðarinnar. 





Allar fréttir

Góður NordLit fundur í Helsinki - 26. janúar, 2026 Fréttir

Árlega fer fram sameiginlegur vinnufundur starfsfólks norrænu bókmenntamiðstöðvanna, til skiptis í höfuðborgum landanna, að þessu sinni í Helsinki.

Nánar

Barna- og ungmennabókahöfundar verða áberandi í erlendri kynningu - 12. janúar, 2026 Fréttir

Nýtt kynningarrit um íslenska barna- og ungmennabókahöfunda í vændum, þátttaka í barnabókamessunni í Bologna og aukinn stuðningur við þýðingar barna- og ungmennabóka á erlend mál. 

Nánar

Viðburðaríkt ár hjá Miðstöð íslenskra bókmennta - 8. janúar, 2026 Fréttir

Á árinu veitti Miðstöð íslenskra bókmennta 70 milljónir króna í styrki til bókaútgáfu, innlendra og erlendra þýðinga, ferðalaga höfunda og í nýræktarstyrki. Kynningarstarf erlendis var öflugt og einkenndist af bókamessum, fundahöldum með erlendum útgefendum og gjöfulu samstarfi með þýðendum og sendiráðum. 

Við bjóðum nýtt ár velkomið og hlökkum til komandi verkefna, enn fleiri bóka!

Nánar

Allar fréttir