Nýir styrkir til útgáfu barna- og unglingabóka frá og með næsta ári

Það er mikið gleðiefni að geta flutt fréttir af mikilvægu skrefi til eflingar útgáfu bóka fyrir börn og ungmenni

24. apríl, 2018

  • Strákur að lesa
    Strákur að lesa bók

Mennta- og menningarmálaráðherra, sagði frá því nýlega að ákveðið hefði verið að að bæta við nýjum styrkjaflokki fyrir barna- og unglingabækur hjá Miðstöð íslenskra bókmennta frá og með næsta ári og það er liður í því að styðja við og efla útgáfu á efni fyrir yngri lesendur. 

Við það tækifæri sagði Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra:
"Eitt það mikilvægasta sem við getum gert til þess að efla læsi í landinu til framtíðar og standa vörð um tungumálið okkar er að tryggja aðgengi barna og ungmenna að bókum við þeirra hæfi.“ 

Lilja-alfredsd„Ég finn fyrir vitundarvakningu og aukinni umræðu um mikilvægi lesturs og bóka – hjá foreldrum, skólafólki og ekki síst hjá krökkunum sjálfum. Það er okkar að skapa umhverfið og vera þeim góðar fyrirmyndir."

Ákvörðunin styður menningarstefnu stjórnvalda þar sem lögð er sérstök áhersla á að efla menningu barna og ungmenna á landinu öllu. Hlutverk Miðstöðvar íslenskra bókmennta er að efla bókmenningu á Íslandi, kynna íslenskar bókmenntir erlendis og stuðla að aukinni útbreiðslu þeirra. Fyrirkomulag styrkjanna og umsóknarferlið verður nánar kynnt síðar.

 


Allar fréttir

Sumarlokun skrifstofu - 2. júlí, 2025 Fréttir

Skrifstofa Miðstöðvar íslenskra bókmennta er lokuð frá 3. júlí til 5. ágúst.  Nánar

Karólína Rós Ólafsdóttir og Natan Jónsson hljóta Nýræktarstyrki í ár - 6. júní, 2025 Fréttir

Nýræktarstyrkir Miðstöðvar íslenskra bókmennta voru veittir í átjánda sinn þann 5. júní. Styrkirnir eru 500.000 kr. og eru veittir til nýrra höfunda fyrir óbirt handrit. 

Nánar

Íslenskar bókmenntir á heimssýningunni í Japan - 2. júní, 2025 Fréttir

Rán Flygenring höfundur og Shohei Akakura japanski þýðandi hennar taka þátt í bókmenntaviðburðum á heimssýningunni sem nú stendur yfir í Osaka í Japan. 

 

Nánar

Allar fréttir