Tilnefningar til Íslensku bókmenntaverðlaunanna og Íslensku glæpasagnaverðlaunanna Blóðdropans 2022

Tilnefningar til Íslensku bókmenntaverðlaunanna og Íslensku glæpasagnaverðlaunanna Blóðdropans 2022 voru kynntar 1. desember á Kjarvalsstöðum.

1. desember, 2022

Hér má sjá tilnefningar til Íslensku bókmenntaverðlaunanna 2022 í þremur flokkum ásamt tilnefningum til Íslensku glæpasagnaverðlaunanna Blóðdropans 2022. 

Tilnefningar til Íslensku bókmenntaverðlaunanna og Íslensku glæpasagnaverðlaunanna Blóðdropans 2022 voru kynntar við hátíðleg athöfn á Kjarvalsstöðum. Hér fyrir neðan má sjá tilnefningarnar ásamt umsögnum dómnefnda. 

Tilnefndir_1669921190248


Bæði verðlaun verða afhent um mánaðamótin janúar-febrúar á komandi ári af forseta Íslands, Guðna Th. Jóhannessyni. Formenn dómnefndanna fjögurra, Guðrún Steinþórsdóttir, Kamilla Guðmundsdóttir, Sigríður Kristjánsdóttir og Skúli Pálsson munu koma saman ásamt forsetaskipuðum formanni, Gísla Sigurðssyni og velja einn verðlaunahafa úr hverjum flokki. Verðlaunaupphæðin er ein milljón króna fyrir hvert verðlaunaverk. Félag íslenskra bókaútgefenda kostar verðlaunin.

Íslensku bókmenntaverðlaunin voru fyrst veitt árið 1989 og er ætlað að draga fram athyglisverðustu útgáfubækur hvers árs. Þetta er í 34. sinn sem tilnefnt er til verðlaunanna.  

Félag íslenskra bókaútgefenda gerði fyrr á þessu ári, samkomulag við Íslenska glæpafélagið um að taka yfir verklega framkvæmd Íslensku glæpasagnaverðlaunanna Blóðdropans ásamt því að kosta verðlaunin með sama hætti og Íslensku bókmenntaverðlaunin. Handhafi Blóðdropans verður, líkt og áður, framlag Íslands til norrænu glæpasagnaverðlaunanna Glerlykilsins.

Eftirfarandi höfundar eru tilnefndir til Íslensku bókmenntaverðalaunanna í flokki skáldverka:

 

EdenAuður Ava Ólafsdóttir
Eden
Útgefandi: Benedikt bókaútgáfa

 

Umsögn dómnefndar: Grípandi samtímasaga um lífið, áskoranir þess en ekki síður fegurð hversdagsleikans. Verk sem ávarpar mikilvægi þess að rækta nærumhverfi sitt á sama tíma og huga þarf að náunganum. Höfundur fangar grósku mannlegs eðlis af einstakri næmni. Sagan endurspeglar á vandaðan hátt mismunandi kima samfélagsins og mótbyr daglegs lífs. Frásögn sem vekur hughrif og samkennd lesandans en skilur jafnframt eftir áleitnar spurningar.

Ljosagangur_72ptDagur Hjartarson
Ljósagangur
Útgefandi: JPV útgáfa

 

Umsögn dómnefndar: Höfundur nær á einstakan hátt að skapa verk sveipað eiginleikum ljóðs og skáldsögu. Í reykvískum veruleika fléttast lögmál eðlisfræðinnar og ástarinnar saman á óvenjulegan hátt þar sem lesandinn hittir fyrir ólíklegar hetjur og skúrka. Spennan rís taktfast með framvindu sögunnar og heldur lesandanum hugföngnum og fullum eftirvæntingar. Sagan er frumleg, spennandi og í takt við stílbrögð ljóðlistarinnar skilur hún eftir rými til hugleiðinga.

TolKristín Eiríksdóttir
Tól
Útgefandi: JPV útgáfa

Umsögn dómnefndar: Áhrifamikið samtímaverk um napran raunveruleika sem mörgum er hulinn. Framsetningin er frumleg og tekst að vera nærgætin en stuðandi á sama tíma. Lesanda er gefin innsýn í breyskleika einstaklingsins í samfélagi sem oft er vanbúið til þess að bregðast við. Án þess að setja sig í dómarasætið nær höfundur að varpa fram spurningum sem skilja mikið eftir sig. Marglaga verk sem lætur engan ósnortinn.

LunguPedro Gunnlaugur Garcia
Lungu
Útgefandi: Bjartur

Umsögn dómnefndar: Töfrandi og vel fléttað verk sem teygir anga sína vítt og breitt í tíma; fullt af frásagnargleði og fjölskrúðugum persónum. Sagan rýnir í samfélagið á frumlegan hátt þar sem framvinda verksins og afdrif persóna kemur sífellt á óvart. Höfundur heldur vel á þræðinum í ættarsögu sem tekst á við mismunandi viðhorf kynslóða til lífsins og áskorana þess. Verk sem spyr áleitinna spurninga og dvelur lengi hjá lesandanum.

Hamingja-thessa-heimsSigríður Hagalín Björnsdóttir
Hamingja þessa heims : Riddarasaga
Útgefandi: Benedikt bókaútgáfa

 

Umsögn dómnefndar: Höfundur fetar nýja slóð frá fyrri verkum sínum og freistar þess að fylla upp í tímabil Íslandssögunnar sem lítið er vitað um. Vísanir í annála, blæbrigði og stíll skapa metnaðarfullt verk sem skrifað er af virðingu fyrir því liðna, jafnt persónum sem tíðaranda. Það fléttast sömuleiðis saman við málefni samtímans á frumlegan hátt. Úr verður grípandi, heildstætt verk sem fangar athygli lesenda um samfélagið og þróun þess, allt frá fyrri tímum til dagsins í dag.

Dómnefnd skipuðu:
Kamilla Guðmundsdóttir, formaður dómnefndar, Andri Yrkill Valsson og Þorvaldur Davíð Kristjánsson.

 

Eftirfarandi höfundar eru tilnefndir til Íslensku bókmenntaverðlaunanna 2022 í flokki barna- og ungmennabóka:

 

 

KollhnisArndís Þórarinsdóttir
Kollhnís
Útgefandi: Mál og menning

 Umsögn dómnefnar: Áhugaverð, þörf og marglaga saga. Aðalpersónan tekst á við flóknar áskoranir og lesandinn er vakinn til umhugsunar um mikilvæg málefni á borð við einhverfu, einelti og ósætti innan fjölskyldu. Textinn flæðir mjög vel, húmorinn er sjaldnast langt undan og rödd sögumannsins skýr og ákveðin þótt hann lesi ekki alltaf rétt í aðstæður.

 

AlltErSvartElísabet Thoroddsen
Allt er svart í myrkrinu
Útgefandi: Bókabeitan

 Umsögn dómnefndar: Vel skrifuð frásögn sem fjallar um hinsegin ástir, dulræn öfl, andaglas og drauga. Atburðarásin er spennandi og söguþráðurinn úthugsaður. Persónur þurfa að takast á við flókin verkefni en í því skyni er mikilvægt að þau öðlist skilning á fortíðinni, vinni saman og treysti á sjálfan sig. Sagan er glæsileg frumraun höfundar.

FrankensleikirEiríkur Örn Norðdahl og Elías Rúni, myndhöfundur
Frankensleikir
Útgefandi: Mál og menning

 Umsögn dómnefndar: Áhugaverð og nýstárleg saga sem sýnir jólasveinana í nýju og óvæntu ljósi. Persónusköpunin er forvitnileg en við sögu koma uppátækjasamir krakkar, kassalaga foreldrar og niðurbútaðir jólasveinar. Í verkinu fléttast listavel saman kímni, fantasía og hrollvekja þannig að úr verður frásögn sem er allt í senn fyndin, óhugnanleg og grípandi.

HeragerdiLóa Hlín Hjálmtýsdóttir
Héragerði
Útgefandi: Salka

 Umsögn dómnefndar: Kostuleg saga þar sem hversdagurinn er gerður að ævintýri. Með gamansemi og næmni fyrir mannlegum tilfinningum er varpað ljósi á flókin fjölskyldubönd, vandræðalegar uppákomur og ríkulega sköpunarhæfni barna. Vandaðar myndlýsingar styðja vel við frásögnina og saman mynda þau listræna heild sem höfðar til lesenda á öllum aldri.

OfreskjanIMyrinni_72-721x1024Sigrún Eldjárn
Ófreskjan í mýrinni
Útgefandi: Mál og menning

 Umsögn dómnefndar: Stórskemmtileg frásögn sem markast af spennu, dulúð og kátínu. Unnið er á frumlegan hátt með íslenska þjóðtrú. Textinn vísar jafnt í fortíð og nútíð, heimsbókmenntir og dægurmenningu þannig að úr verður snjöll og velheppnuð blanda. Ríkulegar og fallegar myndlýsingar auðga söguna og sveipa hana töfraljóma.

 

Dómnefnd skipuðu:
Guðrún Steinþórsdóttir, formaður dómnefndar, Gunnar Björn Melsted og Helga Ósk Hreinsdóttir.

Eftirfarandi höfundar eru tilnefndir til Íslensku bókmenntaverðlaunanna 2022 í flokki fræðibóka og rita almenns efnis: 

Island_Babilon_72

 Árni Snævarr
Ísland Babýlon : Dýrafjarðarmálið og sjálfstæðisbaráttan í nýju ljósi
Útgefandi: Mál og menning


Umsögn dómnefndar: Skemmtileg frásögn um lítt þekktan kafla í sögunni sem sýnir sjálfstæðisbaráttuna frá nýju sjónarhorni. Höfundur leitast við að setja Ísland í samhengi við byltingasögu Evrópu. Þetta er vandlega unnið verk sem fær lesendur til að endurmeta stöðu Íslands í umheiminum.


Farsott

Kristín Svava Tómasdóttir
Farsótt : Hundrað ár í Þingholtsstræti 25
Útgefandi: Sögufélag

 Umsögn dómnefndar: Vandað verk sem veitir innsýn í þróun heilbrigðis- og velferðarmála á Íslandi. Sagan er vel skrifuð, út frá sjónarhorni húss sem gegndi ólíkum en mikilvægum hlutverkum í þróun nútíma samfélags. Margar eftirminnilegar persónur úr öllum þjóðfélagshópum koma við sögu og ríkulegt myndefni styður vel við frásögnina. Falleg og fróðleg bók.

Hvenaer-kemur-sa-stori-FRAMANRagnar Stefánsson
Hvenær kemur sá stóri? Að spá fyrir um jarðskjálfta
Útgefandi: Skrudda

 Umsögn dómnefndar: Stórfróðlegt yfirlitsrit um jarðskjálfta sem lærðir og leikir munu hafa gagn og gaman af. Hér birtist afrakstur áratuga rannsókna eftir einn af okkar helstu sérfræðingum um efnið og er hann bjartsýnn á að unnt verði að segja fyrir um jarðskjálfta. Með vönduðum texta og lýsandi skýringarmyndum auðveldar höfundur almenningi skilning á jarðskjálftum.

Barattan-um-bjargirnarStefán Ólafsson
Baráttan um bjargirnar : Stjórnmál og stéttabarátta í mótun íslensks samfélags
Útgefandi: Háskólaútgáfan

Umsögn dómnefndar: Í bókinni greinir höfundur efnahagslíf, völd og stjórnmál á Íslandi með vandlega rökstuddum málflutningi. Greiningin byggir á umfangsmiklum gögnum sem sett eru fram í skýrum og lýsandi myndritum þar sem þróun á íslensku samfélagi er sett í alþjóðlegt samhengi. Slíkt rit er nauðsynlegt fyrir stjórnmálaumræðu á Íslandi.

Nesstofa_vid_Seltjorn3Þorsteinn Gunnarsson
Nesstofa við Seltjörn : Saga hússins, endurreisn og byggingarlist
Útgefandi: Þjóðminjasafn Íslands

 Umsögn dómnefndar: Hús okkar fyrsta landlæknis, sem byggt var á árunum 1761-1767 á sér merkilega sögu. Ritið á erindi til allra sem er umhugað um húsverndun og varðveislu menningararfsins. Líkt og við byggingu og endurgerð Nesstofu hefur höfundur verksins nostrað við hvert smáatriði. Með vandaðri framsetningu mynda lesendur sterk tengsl við húsið, íbúa þess, starfsemi og sögu.

Dómnefnd skipuðu:
Skúli Pálsson, formaður dómnefndar, Margrét Auðunsdóttir og Sara Hrund Helgudóttir.

 

Eftirfarandi höfundar eru tilnefndir til Íslensku glæpasagnaverðlaunanna Blóðdropans: 

 

Strakar-sem-meida-fronturEva Björg Ægisdóttir
Strákar sem meiða
Útgefandi: Veröld

 Umsögn dómnefndar: Áhugaverð sakamálasaga sem tekur á ljótum samfélagslegum vandamálum. Hefndin ræður ríkjum þegar draugur fortíðar bankar upp á. Höfundur skapar raunsæja mynd þar sem auðvelt er að tengjast persónum og atburðum.

 

Drepsvart-hraun

Lilja Sigurðardóttir
Drepsvart hraun
Útgefandi: JPV útgáfa

Umsögn dómnefndar: Æsispennandi og skemmtileg saga sem heldur lesandanum í gíslingu. Höfundur dansar fína línu á milli raunveruleikans, vísindaskáldskapar og spennusögu.

Reykjavik

Ragnar Jónasson og Katrín Jakobsdóttir
Reykjavík
Útgefandi: Veröld

Umsögn dómnefndar: Spennandi söguleg glæpasaga með óvæntum útspilum. Flæði bókarinnar er gott og samstarf höfundanna gengur mjög vel upp.

 

Stori-brodirSkúli Sigurðsson
Stóri bróðir
Útgefandi: Drápa

Umsögn dómnefndar: Ný rödd hefur kveðið sér hljóðs í heimi íslenskra glæpasagna og það af fullum krafti. Margslungin bók þar sem fjölmargar sögur fléttast saman frá ólíkum sjónarhornum. Bókin er raunsæ og tekur á málefnum sem hafa verið mikið í umræðunni. 

Hungur

Stefán Máni
Hungur
Útgefandi: Sögur útgáfa

Umsögn dómnefndar: Hrottaleg glæpasaga sem fær lesandann til að staldra við og hugleiða hvort hann eigi að lesa áfram. Breyskleikar og áskoranir sögupersóna tvinnast saman við spennandi söguþráðinn.

 

Dómnefnd skipuðu:
Sigríður Kristjánsdóttir, formaður dómnefndar, Áslaug Óttarsdóttir og Einar Eysteinsson.

 

 

 

 


Allar fréttir

Hrím og Skrímslavinafélagið tilnefndar til barna og unglingabókaverðlauna Norðurlandaráðs 2024 - 17. apríl, 2024 Fréttir

Unglingasagan Hrím eftir Hildi Knútsdóttur og barnabókin Skrímslavinafélagið eftir Tómas Zoëga og myndlýst af Sólrúnu Ylfu Ingimarsdóttur eru tilnefndar til Barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2024 fyrir Íslands hönd.

Nánar

Íslenskar bækur væntanlegar á 21 erlendu tungumáli - 15. apríl, 2024 Fréttir

Í fyrri úthlutun ársins voru veittir 55 styrkir til þýðinga íslenskra bóka á 21 tungumál, þar á meðal ensku, frönsku, pólsku, þýsku, úkraínsku, ítölsku, spænsku, sænsku, finnsku og færeysku.

Nánar

Tilnefningar til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2024 - 22. febrúar, 2024 Fréttir

Skáldævisagan Jarðsetning eftir Önnu Maríu Bogadóttur og skáldsagan Tól eftir Kristínu Eiríksdóttur eru tilnefndar til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2024 fyrir Íslands hönd.

Nánar

Allar fréttir