Fréttir (Síða 22)
Fyrirsagnalisti
Norðurlöndin skipa stóran sess á bókamessunni í Helsinki í ár
Sendiráð Íslands, Danmerkur og Noregs í Helsinki ásamt menningarmiðstöðinni Hanaholmen og Pohjola-Norden hafa í sameiningu skipulagt dagskrá með yfir þrjátíu viðburðum á bókamessunni, sem stendur yfir dagana 27.-30. október. Meðal íslenskra höfunda eru Elísabet Jökulsdóttir og Guðbergur Bergsson, sem tilnefnd eru til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs.
Nánar
Auglýst eftir umsóknum um styrki til þýðinga á íslensku. Umsóknarfrestur til 15. nóvember
Styrkir til þýðinga á íslensku eru veittir tvisvar á ári og þeim er ætlað að styrkja þýðingar sem gera alþjóðlega þekkingu og menningarverðmæti aðgengileg fyrir íslenskt málsamfélag. Leitast er við að styrkja mikilvæg verk úr samtímanum, jafnt bækur almenns efnis og skáldverk, sem og heimsbókmenntir í víðum skilningi.
Nánar
Bókasýningin í Frankfurt haldin dagana 19. - 23. október
Bókasýninguna í Frankfurt sækja árlega um 300.000 gestir, en þar koma saman rúmlega 7000 sýnendur frá um 100 löndum til funda og tengslamyndunar. Íslenski básinn í Frankfurt er númer 5.0 B82.
Nánar
Glæsileg ráðstefna um barna- og ungmennabækur í London
Dagskrá ráðstefnunnar var einstaklega metnaðarfull, fróðleg og skemmtileg. Fyrirlesararnir voru m.a. rithöfundar, útgefendur, ritstjórar, kynningarstjórar, markaðsfólk, sjónvarpsstjórar, tölvuleikjahönnuðir og fleira. Allir fjölluðu á einhvern hátt um barna- og ungmennabækur og afþreyingu barna, lestur, bóksölu, samfélagsmiðlana, sjónvarpsefni, kynningaraðferðir, neyslumynstur ungs fólks og ótalmargt fleira.
Nánar
Vel heppnuð bókamessa í Gautaborg; tungumálið, fantasían, hefðin og yrkisefnin
Velheppnaðri og fjölmennri fjögurra daga Bókamessu í Gautaborg lauk á sunnudaginn þar sem fjöldi heimsþekktra höfunda tók þátt. Ísland var þar einnig líkt og undanfarin ár. Glæsilegur básinn, hannaður af HAF studio, skartaði íslenskum bókum sem gestir og gangandi glugguðu í og þar mátti kaupa sumar þeirra í sænskum þýðingum. Sjónum var beint að barna- og ungmennabókmenntum.
Nánar
Íslenskar barna- og ungmennabókmenntir í Gautaborg
Höfundarnir Arnar Már Arngrímsson, Ragnhildur Hólmgeirsdóttir, Þórdís Gísladóttir, Snæbjörn Brynjarsson og Kjartan Yngvi Björnsson taka þátt í aðaldagskrá bókamessunnar.
Nánar
Bookseller barnabókaráðstefna í London
Fagtímaritið The Bookseller stendur fyrir barnabókaráðstefnu í London 27. september næstkomandi undir yfirskriftinni Keeping Children's Books at the Centre of the Universe.
Tveir fulltrúar íslenskrar barnabókaútgáfu taka þátt.
Nánar
Gréta María Bergsdóttir ráðin verkefnastjóri
Gengið hefur verið frá ráðningu í starf verkefnastjóra hjá Miðstöð íslenskra bókmennta, en starfið var auglýst í júní.
Nánar
Þrjú hljóta Nýræktarstyrkina 2016: Birta Þórhallsdóttir fyrir Einsamræður, Björn Halldórsson fyrir Smáglæpi og Vilhjálmur Bergmann Bragason fyrir Afhendingu
Í ár bárust 35 umsóknir um Nýræktarstyrki. Verkin sem sótt var um fyrir eru af ýmsum toga s.s. skáldsögur, leikrit, ljóð, barna- og ungmennabækur, smásögur og glæpasögur.
NánarStyrkir til þýðinga á íslensku, fyrri úthlutun 2016
Að þessu sinni var úthlutað 7,2 milljónum króna í styrki til 19 þýðinga á íslensku, þar á meðal eru þýðingar á verkum eftir Virginu Woolf, Roberto Bolano, Elenu Ferrante og Roald Dahl.
NánarTilkynnt um úthlutun útgáfustyrkja 2016
Miðstöð íslenskra bókmennta hefur nú úthlutað 23.3 millj.kr. til 55 verka. Alls bárust 80 umsóknir frá 28 útgefendum og sótt var um tæpar 57 millj.kr.
NánarKoparborgin og Sölvasaga unglings tilnefndar fyrir hönd Íslands til barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs
Tilkynnt verður um verðlaunahafa og verðlaunafé að upphæð 350 þúsund d.kr. afhent þann 1. nóvember 2016 í tónleikahúsi DR í Kaupmannahöfn í tengslum við þing Norðurlandaráðs.
NánarNæstu umsóknarfrestir um styrki
Umsóknarfrestur um Nýræktarstyrki rennur út 15. apríl nk, þeir eru veittir einu sinni á ári og er ætlað að hvetja til útgáfu á nýjum íslenskum skáldskap af öllum toga. Næsti umsóknarfrestur um ferðastyrki höfunda er 15. maí.
NánarMiðstöð íslenskra bókmennta á bókamessunni í London 12.-14. apríl
Nýr bókalisti yfir bækur frá liðnu ári verður kynntur á messunni og sýningarbás með systurstofnunum Miðstöðvar íslenskra bókmennta á Norðurlöndunum verður á bókamessunni líkt og undanfarin ár. Básinn er númer 6F70.
NánarNýræktarstyrkir 2016, auglýst eftir umsóknum
Nýræktarstyrkjum er ætlað að styðja við útgáfu á fyrstu verkum nýrra höfunda. Hér er átt við skáldverk í víðri merkingu orðsins.
